Endurnýjun á hljóð- og útsendingakerfi í Hafnarkirkju
Í gegnum árin hefur það tíðkast í stærri athöfnum við Hafnarkirkju, að aðstandendur hafa lagt í talsverðan kostnað við leigu á útsendingabúnaði til að varpa athöfnum bæði í hljóðvarpi sem og í sjónvarpi. Hefur sá búnaður leyst þann vanda sem verður, þegar kirkjan er full og vísa þarf fólk á Hótel Höfn til að hlýða á athöfnina. Hefur það lengi verið draumur sóknarnefndar Hafnarsóknar að geta leyst þetta á varanlegan hátt og er sú lausn nú í sjónmáli.
En nú í októberlok var lagður sjónvarpskapall í jörðu frá Hafnarkirkju og að Hótel Höfn. Til að auka enn frekar við notagildi þessarar framkvæmdar var í áframhaldi lagður í jörðu sjónvarpskapall að Heilbrigðisstofnun Suð-austurlands. Var það gert í þeim tilgangi að þeim sem eiga ekki heimangengt af stofuninni, sé einnig kleyft að vera þátttakendur í athöfnum við Hafnarkirkju.
Til að fullkomna þessa framkvæmd og auka enn frekar notagildi hennar ákvað sóknarnefnd Hafnarsóknar að festa kaup á fullkomnu hljóðkerfi sem meðal annars hefur sérstaka möguleika fyrir þá sem þurfa á heyrnartækjua að halda, sem og stafrænni sjónvarpsupptökuvél. Með þessu er verið meðal annars að gera vistmönnum á Heilbrigðisstofnunni það kleyft að njóta allra athafna sem fara fram í Hafnarkirkju, jafnt venjulegra messugerðar sem og allra þeirra tónlistar og menningar viðburða sem eru í kirkjunni. Einnig er verið að gera alla upptöku auðveldari, sem stuðlar að frekari varðveislu á menningarviðburðum héraðsins sem og öðru því er fram fer í kirkjunni. Árlegir styrktartónleikar Karlakórsins Jökuls verða haldnir á morgun, 21. des., og verða þeir sendir út á Hjúkrunarheimilið.
Kirkjan hefur notið velvilja einstaklinga hér í sveitarfélaginu sem og líknarfélaga og opinbera aðila sem hafa gefið fé í þessa framkvæmd, og kunnum við þeim þakkir fyrir, enda hér um dýra framkvæmd að ræða, en hafa ber í huga að þetta kemur til með að þjóna samfélaginu til framtíðar. Fjármögnun er ekki að fullu lokið, en að mestu þó, en ef einstaklingar eða fyrirtæki vilja leggja þessari framkvæmd lið þá er bent á gjafareikning Hafnarkirkju, í Landsbanka Íslands , 0172-05-61552, kennitala Hafnarkirkju er 590169-7309
Gauti Árnason,
formaður sóknarnefndar Hafnarsóknar





Skrifa athugasemd