Desember
Hlynur Pálmason
Hlynur Pálmason
Hlynur Pálmason
Mynd 3 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

19.12.2008 Desember

Annáll Menningarmiðstöðvar 2008

Úrdráttur úr annál Menningarmiðstöðvarinnar 2008

Árið 2008 er búið að vera annasamt ár hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Aðsókn á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar hefur verið góð í ár og menningarlífið hefur blómstrað. Má áætla að gestir að söfnum, viðburðum og sýningum séu um 43.000 og þá eru ótaldir þeir sem hafa sótt ráð og aðstoð hjá Menningarmiðstöðinni við ýmis undirbúning viðburða, styrkumsóknir og annað.
Menningarmiðstöðin hefur í vaxandi mæli boðið fyrirtækjum, hópum og einstaklingum á svæðinu ráðgjöf við að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu og eða aðstoð við að halda viðburði, ásamt því að standa sjálf fyrir viðburðum og á því er engin breyting í ár.

Auk þessa hafa starfsmenn Menningarmiðstöðvar tekið þátt í verkefnum sem eru ekki á ábyrgð Menningarmiðstöðvar og dæmi um þessi verkefni eru Gáttir, þar sem unnið er að vöruþróun Papa verkefnis sem verður farið betur yfir hér fyrir neðan, ásamt og Humarhátíð Hornfirðinga.
Menningarmiðstöðin hefur tekin virkan þátt í sköpun atvinnutækifæra innan menningargeirans og í menningartengdri ferðaþjónustu á árinu en það starf er nátengt starfinu sem á sér stað innan Nýheima, þar sem áherslan er lögð á vöruþróun og atvinnusköpun innan ferðaþjónustu og matvæla.
Hér að neðan má svo lesa um brot af þeim verkefnum, viðburðum, sýningum og tónleikum sem hafa átt sér stað á árinu

Brot af verkefnum Menningarmiðstöðvar á árinu 2008

Verkefnið Munnleg hefð var unnið í samvinnu við Háskólasetur og Árnastofnun. Gamlar upptökur voru afritaðar á stafrænt form og skráðar orð frá orði. Fjórir starfsmenn unnu að verkefninu og verður því haldið áfram á komandi árum. Markmið verkefnisins er að varðveita þær heimildir sem þegar eru til en hafa verið varðveitt á segulböndum sem standast illa tímans tönn. Þá hefur Heimir Þór Gíslason afhent sveitarfélaginu myndbandasafn sitt til varðveislu og er unnið að því að setja það á stafrænt form og verða myndir hans sýndar þegar fram líða stundir. Verkefnið tengist verkefni sem er í undirbúningi og snýr að sögu svæðisins. Þar verður leitast við að draga fram einstaka atburði, sögur og kennileiti í landslagi, gefa heimamönnum og gestum færi á að kynnast sögu svæðisins á ferðum sínum um héraðið.

Menningarmiðstöðin tók þátt í verkefninu Economuseum, þar sem unnið er með handverksfólki, með það að markmiði að auka verðmæti afurða og ná til ferðamanna. Verkefnið er unnið í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð og hafa tvö fyrirtæki verið valin þar sem unnið er að þróun vinnuaðstöðu, söluaðstöðu og saga handverksins gerð sýnileg. Economuseum er kanadísk hugmyndafræði sem verið er að yfirfæra á fyrirtæki í Evrópu, Ísland, Noregur, Norður Írland, Írland og Færeyjar taka þátt í verkefninu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði leiðir verkefnið fyrir Íslands hönd.

Sýningar Menningarmiðstöðvar 2008
Sýningin Eystrahorn 25 ára. Í Nýheimum var opnuð sýning á myndum úr ljósmyndasafni Eystrahorns. Tilefnið var 25 ára afmæli blaðsins. Á sýningunni voru einnig gamlar ljósmyndavélar og fleira úr eigu blaðsins. Ljósmyndasafn Eystrahorns, frá upphafi blaðsins til þess tíma er það tók upp stafræna ljósmyndatækni, er varðveitt í Héraðsskjalasafninu og er stærsta einstaka safn ljósmynda sem þar er nú varðveitt.
Hlynur Pálmason var með sýningu á ljósmyndum og málverkum á árinu. Sýningin var einskonar dagbókarbrot sem hann kallaði "Sjónræn dagbók". Hlynur hélt einnig sýningu í fyrra og hlökkum við til að sjá hvað hann á eftir að sýna okkur í framtíðinni.

Af Sólhól minninganna er sýning sem Borgþór Arngrímsson setti upp í samstarfi við Menningarmiðstöðina. Sýning þessi er safn stuttra frásagna Borgþórs Arngrímssonar sem ólst upp á Sólhól (Bogaslóð 6) frá þriggja ára aldri. Borgþór, sem fæddur er 1950, hefur sett á blað minningabrot úr æsku sinni þar sem ýmsir íbúar í þorpinu og atburðir sem þar gerðust koma við sögu. Sonur Borgþórs Arngrímur, sem er menntaður myndlistarmaður, hefur gert teikningar sem fylgja hverri sögu, án þess þó endilega að tengjast beint söguefninu. Ennfremur fylgja sögunum ljósmyndir sem tengjast efninu.
Hornfirskt landslag var sýning á verkum í eigu sveitarfélagsins eftir þá Höskuld Björnsson, Svavar Guðnason, Jón Þorleifsson, Bjarna Henriksson og Rafn Eiríksson. Sýningin kallast "Hornfirskt landslag" og þar mátti sjá, eins og nafnið ber með sér, umhverfi Hornafjarðar með augum þessara brautryðjenda.

Viðburðir Menningarmiðstöðvar 2008
Málþing á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar var haldið á árinu. Tilgangur málþingsins var m.a. að efla handverk og hönnun á Austurlandi og draga fram þau sérkenni sem þar er að finna í mat og minjum. Markmiðið með málþinginu var að renna styrkum stoðum undir framleiðslu og sölu minjagripa, skapa störf og starfsvettvang fyrir handverksfólk og hönnuði, og skapa þeim aðilum sem þegar vinna við handverk, matarminjar og hönnun, vettvang þar sem sýningar og námskeið verða mótuð um leið og nýsköpun og nýliðun innan greinarinnar verður efld.
Tónleikar í samstarfi við Menningarmiðstöð 2008
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í íþróttahúsinu á Höfn. Aðgangur að tónleikunum var ókeypis og mættu um 380 manns til að hlýða á tónlist Sinfóníunnar. Á efnisskrá var fimmta sinfónía Beethovens, Karnivalforleikur eftir Dvorák og kafli úr hinni ástsælu tónlist Edvard Grieg við Pétur Gaut. Fyrsti konsertmeistari hljómsveitarinnar, Sigrún Eðvaldsdóttir, lék einleik með hljómsveitinni í Rómönsu eftir Árna Björnsson og fyrsta kaflann úr fiðlukonsert Sibeliusar. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar er Petri Sakari.

Frostrósir héldu stórtónleika í Íþróttahúsinu, ásamt hljómsveit, barnakór og strengjakvartett. Hornfirðingar fjölmenntu á tónleikana, gestir komu frá nágrannabyggðum og var mikil og góð stemming í Íþróttahúsinu. Um 400 manns komu til að hlusta á jólalögin og eiga góða kvöldstund. Tónleikarnir voru hinir glæsilegustu og við hlökkum til að fá Frostrósir aftur í heimsókn að ári.

Árið 2009 verður einnig viðburðaríkt hjá Menningarmiðstöðinni en hér fyrir neðan eru nokkur af þeim verkefnum sem verða tekin fyrir á næsta ári.
Söguslóðir á Suðausturlandi
Melatangi, þátttaka í uppbyggingu fólkvangs á Melatanga
Vöruþróunarverkefni á menningartengdri ferðaþjónustu, Humarhátíð og Papaverkefni
Þátttaka og aðstoð við undirbúning hátíða og viðburða
Aðstoð við styrkumsóknir og undirbúning verkefna
Þátttaka í útgáfu bókar um Svavar Guðnason
Sýning á verkum Svavars Guðnasonar
Dagskrá tengda Lóni, sögu og sögnum úr héraði
Gönguferðir, t.d. í Lóni
Ljósmyndasýning
Spurningakeppni fyrirtækja
Þjóðahátíð
Menningahátíð ungmenna á Hornafirði

Hægt er að lesa allan annálinn hér á heimasíðu þeirra.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica