Desember
Hreindýr í Hellinum
Hreindýr í Hellinum
Hreindýr í Hellinum
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

15.12.2008 Desember

Eitt hreindýr hefur haldið sig í Hellinum

Undanfarnar vikur hefur eitt hreindýr haldið sig í Hellinum (eyjunni) sem er við innsiglinguna til Hornafjarðar, og er talið líklegt að það hafi synt yfir álinn frá Austurfjörum þar sem nokkur hreindýr hafa haldið sig. Svo er bara spurningin sem líklega er erfitt að fá svar við, var sundið milli lands og eyjar svo erfitt að dýrið leggur ekki í að fara til baka. Hreindýrið virðist hafa nóg að éta en hvort nægjanlegt drykkjarvatn er á eynni höfum við ekki fengið upplýsingar um.

Það væri verðugt verkefni fyrir þá sem sinna dýraverndunarstörfum í sveitarfélaginu að hjálpa þessum ,,eyjafanga´´ til að komast í hópinn sinn aftur og verða frjáls ferða sinna en ekki hýrast einn á þessari eyðieyju um jólahátíðina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica