Bréfmaraþon Amnesty International
Bréfamaraþon Amnesty International verður haldið hér á Höfn í bókasafninu laugardaginn 13. des. kl. 10 -14. Þetta er árlegur viðburður þar sem fólki gefst tækifæri til að koma saman og skrifa fórnarlömbum mannréttindabrota bréf og kort, á aðventunni. Einnig skrifar fólk undir fyrirfram skrifuð bréf sem stíluð eru til stjórnvalda víða um heim, þar sem þrýst er á um lausn samviskufanga eða að fallið verði frá dauðarefsingu. Sumir vilja skrifa sín eigin bréf og þá fylgja með leiðbeiningar frá okkur um hvernig það er gert, það er hvernig orðalag skal vera og annað í þeim dúr. Skrifstofa Amnesty International á Íslandi sér síðan um að koma bréfunum til skila.
Bréfamaraþon Amnesty International hefur heppnast mjög vel undanfarin ár en í fyrra var það haldið í Reykjavík, á Ísafirði og Egilsstöðum. Nú verður það haldið enn víðar, það er á áðurnefndum stöðum auk Akureyrar, Reykjanesbæjar, og Akraness. Markmið okkar er að senda a.m.k. 1000 bréf og kort frá Íslandi en í fyrra voru 300 send héðan.





Skrifa athugasemd