Desember
180 gestir sóttu aðventustund Skaftfellingafélagsins
Árleg aðventustund Skaftfellingafélagsins og Söngfélagsins var haldin í Skaftfellingabúð sunnudaginn 7. desember s.l. Söngfélagið, undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar, söng 11 jólalög við góðar undirtektir og kom gestum í jólaskap á aðventunni. Glæsilegum veitingum af kaffiborði Ingu Jónu og Söngfélaganna voru gerð góð skil. Tveir einstaklega skemmtilegir jólasveinar, Kjetkrókur og Skyrgámur, sáu um að skemmta ungviðinu og dönsuðu dátt í kringum jólatréð við harmonikkuundirleik Kristins Kjartanssonar og píanóleik Friðriks söngstjóra.
Talið er að um 180 gestir hafi sótt þessa aðventustund sem þykir fádæma góð aðsókn.
- SMS





Skrifa athugasemd