Desember
Fjöldi manns mætti á miðbæjarsvæðið þegar kveikt var á jólatrénu
Fjöldi fólks var samakomið á miðbæjarsvæðinu á Höfn kl 17.00 í dag þegar kveikt var á jólatrénu. Haukur Þorvaldsson stjórnaði dagskránni sem þar fór fram. Meðal þess sem þar fór fram var að félagar úr lúðrasveitinni léku, Samkór Hornafjarðar söng, leikskólabörn sungu, Þórgunnur Torfadóttir flutti ávarp, séra Sigurðu Kr. flutti hugvekju og að sjálfsögðu mættu jólasveinarnir á staðinn. Veður var hið fegursta,logn hiti rétt við frostmarkið og smá snjór svona rétt til að gera allt enn jólalegra.
Hafnarbúar eru duglegir að skreyta hús sín og er kominn fallegur jólablær yfir bæinn.




Skrifa athugasemd