Desember
Jólasveinar á aðfangadag
Jólasveinar á aðfangadag
Mynd 1 af 2
1 2

05.12.2008 Desember

Jólaljósin tendruð.

Á sunnudaginn kemur kl. 17:00 verða ljósin tendruð á jólatré Hornafjarðar í miðbænum.
Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hornafjarðar jólalög undir stjórn Jóhanns Morávek.
Flutt verður ávarp og hugvekja. Að venju kveikir nemandi í 1. bekk í Nesjaskóla ljósin á trénu sem kemur að þessu sinni frá Haukafell á Mýrum. Samkór Hornafjarðar syngur, stjórnandi er Kristín Jóhannesdóttir. Þá koma leikskólabörn og taka lagið.

Fréttir af fjöllum herma að fyrstu jólasveinarnir ætli að kíkja til byggða og er líklegt að þeir taki stefnuna í miðbæinn þegar þeir sjá ljósin á jólatrénu.

Hornfirðingar eru hvattir til að fjölmenna við athöfnina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica