Hrútaskráin komin út
Kornrækt gekk vel í Hornafirði í sumar og hafa kornakrar stækkað og fjölgað úr um 100 ha. í 150 ha. og nýir kornræktendur bæst við. Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandinu segir hey vera mikil og góð eftir sumarið og ásetningur hjá sauðfjárbændum er heldur meiri. Bændur hér taka þessu þjóðfélagsástandi sem nú er með stakri ró enda ýmsu vanir í búskapnum gegnum árin. Á nýafstöðnum fundi bændasamtakanna sem haldinn var í Nýheimum kom fram að mikill nýsköpunaráhugi er hjá bændum hér í sýslunni, margir eru með skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir og eru miklar vonir bundnar við samvinnu við Matís með markaðssetningu á heimaunnum afurðum.
Þórey Bjarnadóttir hjá Búnaðarsambandinu segir að framundan sé annatími hjá sauðfjárbændum, verið er að rýja féð, meta ullina og koma henni til Ístex þar sem ullin er þvegin og unnin. Skráðir sauðfjáreigendur í sýslunni eru um 40 og sá sem státar af stærsta fjárhópnum er með um 1200 kindur. Hrútaskráin er nýkomin út og segir Þórey að á þessum tíma sé hún mest lesna bókin meðal sauðfjárbænda enda fengitíminn framundan og nauðsynlegt að kynna sér vel hvernig má kynbæta bústofninn enn betur og fá nýtt blóð í stofninn. Tvær sæðingarstöðvar eru á landinu þ.e. í Laugardælum og Borgarnesi.





Skrifa athugasemd