Desember
Vinningshafar
Vinningshafar
Vinningshafar
Mynd 2 af 2
1 2

04.12.2008 Desember

Alls fuku tæp 50 kíló af keppendum

Fyrirtækjaáskorun Sporthallarinnar er nýlokið. Það voru 12 lið sem kepptu sín á milli og var mikil barátta. Alls fuku 49,9 kg. af keppendum og 335,6 cm., ekki amalegt það fyrir átveislurnar sem eru framundan.

Þeir sem unnu til verðlauna:
Besta mætingin: Tannlæknastofa Héðins og fast þar á eftir kom Flugstoðir og Rósaberg. Áskorun á milli fyrirtækja: Lið Sævar Gylfasonar Skólalið nr II, Bæjarskrifstofan, Rósaberg, Flugstoðir, Tannlæknastofa Héðins og Krakkakot.
Mestu "lúserarnir" ( þeir sem misstu mest): Sævar Gylfason léttist mest og Styrgerður Hanna missti flesta sentimetrana.

Við í Sporthöllinni viljum þakka öllum áskorendunum fyrir skemmtilega keppni og ætlum við að koma með eitthvað nýtt eftir áramót fyrir fyritækin og sjá hvort við fáum ekki enn fleiri í keppnina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica