Nóvember

Flokkun heimilissorps

Krakkakotsbörn leiðbeinendur í Ekru - 28.11.2008 Nóvember

Flokkunarílát fyrir sorp hafa verið sett upp við leikskólann Krakkakot og er þeirri flokkunarstöð ætlað að þjóna leikskólanum, hjúkrunarheimilinu og Ekrunni og að sjálfsögðu er öllum öðrum íbúum velkomið að nýta stöðina. Til þess að öllu skuli nú vel til haga haldið og farið eftir settum reglum tóku krakkarnir á Krakkakoti að sér að leiðbeina eldri borgurunum í Ekrunni hvernig flokka skuli heimilissorp og hvað skuli fara í hvert ílát, sem öll eru vel merkt. Lesa meira
 
Blekkingin

Leikhópurinn Lopi frumsýnir á sunnudaginn - 27.11.2008 Nóvember

Leikhópurinn Lopi frumsýnir á sunnudaginn leikritið Blekkingin. Leikrit þetta er eftir Magnús J. Magnússon sem einnig leikstýrir. Leikritið fjallar um hóp unglinga sem eru að skipuleggja sumarlokaveislu. Leikarar í sýningunni eru 27 og aðrir sem koma að henni eru 10 þannig um 37 taka þátt í verkefninu. Þetta er 21. verkefni Lopa sem nú er að hefja sitt 17. leikár. Má ætla að mikill fjöldi ungmenna hafi farið í gegnum sýningarferlið hjá Lopa í gegnum tíðina. Við hvetjum gamla Lopa til að mæta og rifja upp stemminguna. Lesa meira
 
Nokkrir af vinningshöfum línunnar ásamt slysavarnarfélagsins

Vinningar í Línunni - 27.11.2008 Nóvember

Slysavarnadeildin Framtíðin var með sína árlegu sölu á Línunni nú í síðustu viku. Um 70 glæsilegir vinningar voru dregnir út í gær og eru nú komnir í hendur vinningshafanna. Það er gaman að segja frá því hvað öll fyrirtæki tóku vel á móti okkur og voru tilbúin að styrkja félagið, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Salan á Línunni gekk mjög vel eins og undanfarin ár og frábært að sjá hvað margar eru virkar í félaginu og tilbúnar að taka þátt í starfinu og vera með. Í félaginu eru um 100 konur og eru nýir félagar alltaf velkomnir. Lesa meira
 
Chiharu ásamt japönsku sjónvarpsfólki

Japanskt sjónvarpsfólk í heimsókn - 26.11.2008 Nóvember

Í síðustu viku mátti sjá 10 Japani á ferð um Höfn. Þetta var fólk sem vinnur hjá japönsku sjónvarpsstöðinni TV Asahi. Tilgangur ferðalags þeirra hingað til Hornafjarðar var að hitta Chiharu Kawai sem býr hér á Höfn. Þessi sjónvarpsstöð er að vinna að þætti sem fjallar um Japani sem búa í fámennum sveitarfélögum. Sjónvarpsfólkið hafði samband við japanska sendiráðið og fékk upplýsingar um Chiharu en hún er eini Japaninn á Íslandi sem er búsett utan höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira
 
Stíll_1

Yfir 60 félagsmiðstöðvar tóku þátt í Stíl 2008 - 26.11.2008 Nóvember

Síðastliðna helgi fóru fjórar ungar stúlkur fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar til Reykjavíkur til að keppa á Stíl. Stíll 2008, er áttunda keppni af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés og þar er keppt í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun. Þetta árið var "Framtíðin" þema. Fyrr í vetur var valið hverjir ættu að keppa fyrir hönd Þrykkjunnar og fór valið fram með þeim hætti að áhugasamir skiluðu inn möppu með hugmynd, lýsingu og útfærslu. Sex möppum var skilað inn og var það mikið vandaverk fyrir dómnefnd að velja þá bestu þar sem hugmyndirnar voru hver annarri flottari. Lesa meira
 
VÍS á Höfn

VÍS og Sparisjóðurinn á Höfn í samstarf - 25.11.2008 Nóvember

Þann 20. nóvember s.l. hófu Sparisjóður Vestmannaeyja og VÍS samstarf á Höfn. Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir verður áfram þjónustustjóri VÍS á Höfn og í nágrenni og mun hér eftir sem hingað til þjóna viðskiptavinum og bjóða tryggingaþjónustu VÍS og Lífís. Samstarf VÍS og Sparisjóðsins felur meðal annars í sér tilboð á tryggingavernd til viðskiptavina í Vildarþjónustu Sparisjóðsins. Viðskiptavinir Sparisjóðsins sem greiða iðgjöld sín með bein-eða boðgreiðslum fá 5% afslátt af grunntryggingum hjá VÍS og gildir tilboðið strax við nýskráningu trygginga eða við næstu endurnýjun iðgjalda. Lesa meira
 
Andir Geir Jónasson, Freyr Sigurðarson og Níels Brimar Jónsson

Sigruðu í olíuleitinni - 24.11.2008 Nóvember

Nú fyrir helgi, 20. og 21. nóvember, tóku nokkrir nemendur í FAS þátt í tölvuleiknum OILSIM sem er námsleikur þar sem markmiðið er að finna olíu og finna leiðir til að vinna hana. Tölvuleikurinn fer fram á ensku og þurfa nemendur að kynna sér ýmis atriði í jarðfræði sem tengjast myndun og vinnslu olíu. Þá þarf að beita stærðfræðinni til að finna út hvað rannsóknarleyfi og vinnsluleyfi kosta auk þess sem finna þarf út hvaða borpallar henti best fyrir viðkomandi svæði. Þá þurfa liðin að athuga hvort hagstæðara sé að mynda hlutafélag með öðrum við vinnsluna. Það lið vinnur sem finnur mest magn af olíu með minnstum tilkostnaði. Lesa meira
 
Fermingarbörn 1962

Fermingarbörnin á Hornafirði árið 1962. - 23.11.2008 Nóvember

Þessi ungmenni sem eru hér á myndinni voru fermd af séra Skarphéðni Péturssyni í Bjarnaneskirkju við Laxá, á uppstigningardag, 31. maí 1962 í blíðskaparveðri, sólskini og andvara. Altarisganga var svo þann 2. júní. Á þessum tíma markaði ferming upphaf fullorðinsára. Í ár urðu þau sextug og eru því að stíga sín fyrstu spor í átt að því að verða fullgildir eldri borgarar. En hvar eru þau nú og hvert varð ævistarf þeirra og framlag til lands og þjóðar? Lesa meira
 
Piparkökuhúsið á Smyrlabjörgum

Yfir 60 réttir á jólahalaðborðinu - 22.11.2008 Nóvember

Þá er komið að jólahlaðborðunum sem eru orðin hreint ómissandi þáttur í jólaannríkinu hjá mörgum og því fannst okkur tilvalið að forvitnast aðeins um hvernig gangi núna að fá allar þessar framandi steikur sem verið hafa á jólahlaðborðunum undanfarin ár. Laufey hótelstjóri á Smyrlabjörgum varð fyrir svörum og sagðist leggja mest upp úr heimafengnum afurðum. Allt hráefni bæði landbúnaðar-og sjávarafurðir að undanskildum akurhænum og skógardúfum er fengið hér í heimahéraði og allt heimaunnið. Lesa meira
 
economuseum

Hagleikssmiðjur Norður Evrópu - 21.11.2008 Nóvember

Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði er þáttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni Economuseum Northern-Europe, ENE. Verkefnið gengur út á að yfirfæra kanadískt viðskiptalíkan fyrir handverksfyrirtæki (economuseum) hér eftir kallaðar Hagleikssmiðjur, til landa Norður-Evrópu. Þátttökulönd fyrir utan Ísland eru Noregur, Norður-Írland, Írland, Færeyjar og Kanada. Kanadísku samstarfsaðilarnir þróuðu viðskiptalíkanið og eru tilbúnir til að miðla okkur af þekkingu sinni en sameiginlega er farið yfir hvernig best verður staðið að þekkingaryfirfærslunni. Hagleikssmiðju- viðskiptalíkanið hefur verið í þróun undanfarin 20 ár og í dag eru starfandi 50 slík fyrirtæki á austurströnd Kanada, starfsmenn eru um 500 talsins, heildarvelta þessara fyrirtækja er um þrír miljarðar og árlega fá þessi fyrirtæki um 700.000 heimsóknir. Lesa meira
 
Jólastjarna

Ljósadýrðin hefur góð áhrif - 20.11.2008 Nóvember

Það styttist til jóla og þó ekki sé nema 20.nóvember eru Hornfirðingar komnir í jólaskap og daglega bætast við jólaskreytingar víða um bæinn. Starfsmenn Áhaldahússins þeir Sigurður B. Halldórsson og Jón Stefánsson notuðu góða veðrið í dag til að setja upp jólaskreytingar á ljósastaurana. Haft var orð á hvort væri ekki bara best að hafa þetta á staurunum allt árið það væri svo stutt frá því skreytingin var tekin niður eftir síðustu jól. Lesa meira
 
Bjarmi Þeyr Jónsson tekur fyrstu skóflustunguna, pabbinn segir honum til

Fyrsta skóflustunga fyrir nýja Leirusvæðið - 20.11.2008 Nóvember

Hafinn er undirbúningur að byggingarlóðum á Leirusvæðinu á Höfn en skipulag fyrir þetta svæði tók gildi á þessu ári. Þarna er verið að gera götur og byggingarland tilbúið undir einbýlishúsalóðir. Svæðinu verður áfangaskipt og boðið fyrst upp á lóðir sem liggja að núverandi byggð á leirusvæði. Vonast er til að þær lóðir verði tilbúnar til úthlutunar í vor. Verktaki við jarðvegsframkvæmdir er Rósaberg ehf. Lóðir fyrir parhús eru tilbúnar nokkru austar á leirusvæðinu. Verið er að kanna hvort farið verður í byggingu parhúsa þar sem skortur er orðinn á leiguhúsnæði hér á Höfn og skoðað hvernig hagkvæmast yrði staðið að því. Að sögn Lovísu Rósu Bjarnadóttur hjá Rósaberg þá gengur verkið vel og segir hún engan krepputón að finna hjá þeim. Lesa meira
 
Regína Hreinsdóttir

Náttúrufegurðin er söm við sig á hvaða árstíma sem er - 18.11.2008 Nóvember

Á köldum vetrarmorgni í Skaftafelli, er erill sumarsins víðs fjarri huganum. Því er ekki að neita að maður andar léttar þegar skarkali sumarsins deyr smásaman út á haustin og það fer aftur að dimma á kvöldin. Á sama hátt fyllist maður tilhlökkun og kæti á vorin þegar daginn er farið að lengja og fyrstu ferðamennirnir fara að stinga upp kollinum. Ferðaþjónustan hefur yfir sér þennan vertíðarbrag rétt eins og fiskurinn, og það mynstur kemur líklega aldrei til með að breytast, þó að væntingar um að hægt verði að jafna álagið meira yfir árið verði að veruleika. Lesa meira
 
NAM_Austur

Halda námskeið í Nýheimum um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu - 17.11.2008 Nóvember

Útflutningsráð í samvinnu við KPMG og Þróunarfélag Austurlands halda í dag námskeið á Höfn um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu undir yfirskriftinni "ERTU AÐ VERÐLEGGJA RÉTT?" Á námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Þátttakendur fá einnig áætlunarlíkan í Excel til afnota. Námskeið þetta er ætlað fyrirtækjum sem eru í útflutningi á vöru og þjónustu, þ.á m. ferðaþjónustufyrirtækjum. Enginn aðgangseyrir er á námskeiðið. Námskeiðið hefst í Nýheimum í dag kl. 13 og stendur til kl. 17. Lesa meira
 
Nýja sundlaugin

Rennibrautirnar prufaðar - 14.11.2008 Nóvember

Rennibrautirnar við nýju sundlaugina hér á Höfn voru prufukeyrðar í dag og ekki bar á öðru en þær skiluðu sínu hlutverki eins og til er ætlast og þátttakendur runnu með glæsibrag í gegn. Að sögn Birgis Árnasonar er verið að ljúka við hreinsun innan í lauginni og verður dúkurinn settur í hana um helgina. Þegar búið er að ganga frá dúknum verður laugin fyllt af vatni og það haft í henni . Þó vatn sem verður um 4°C heitt verði komið í laugina þýðir það ekki að megi fara að synda í henni, það er algerlega bannað. Birgir biður um að koma þeim skilaboðum til foreldra að þau fái börn sín til að virða það bann, þetta er einungis vinnusvæði og þess utan er vatnið alltof kalt. Lesa meira
 
Endur

Mortens kvöld á Humarhöfninni - 11.11.2008 Nóvember

Þeir sem hafa búið í Danmörk í skemmri eða lengri tíma kannast eflaust við þann sið að halda upp á Mortenskvöld. Sagan um Morten fylgir hér á eftir en í stuttu máli gengur siðurinn út á að borða önd eða gæs á Mortens kvöldi. Nú þegar við Hornfirðingar eigum okkar eigin andabónda á Hlíðarbergi fannst okkur á Humarhöfninni tilvalið að kynna þennan sið fyrir heimamönnum og höldum því hátíðlegt Mortenskvöld laugardag 15. nóv. þar sem boðið verður upp á heilsteiktar endur og fleira góðgæti. Upplýsingar um matseðil og fleira er að finna á viðburðadagatali. Hittumst í Kaupfélaginu! Lesa meira
 
Snorri-Snorrason

Skortur á leiguhúsnæði á Höfn - 10.11.2008 Nóvember

Aðeins tvær eignir eru skráðar á leigumarkaði hjá okkur hér á Hornafirði segir Snorri Snorrason hjá fasteignasölunni Inni og hér vantar orðið leiguíbúðir. því það er nokkur eftirspurn eftir leiguíbúðum en framboð hefur verið lítið. Það eru sölur í gangi hjá okkur og eins er verið að leita tilboða líka. Af þessu landsvæði sem fasteignasalan nær yfir þ.e. frá Höfn til Húsavíkur er einna mest hreyfing hjá okkur hér, það er ekki mikið að gerast annarsstaðar. Lesa meira
 
Jöklamælingar

Mælingar á Heinabergsjökli - 10.11.2008 Nóvember

Þann 29. október s.l. héldu krakkar úr NÁT113 í jöklamælingaferð inn að Heinabergsjökli. Tilgangur þessarar ferðar var að gá hvort jökullinn hefði skriðið fram eða hopað frá síðasta ári. Í ferðina héldu 16 krakkar ásamt tveimur kennurum. Þeim var skipt í 5 hópa; kíkishóp sem sá um að stilla kíkinn og mæla gráður og horn, mælingahóp sem sá um að mæla vegalengdir milli varðanna, vörðuhópur sem lítið gat gert vegna snjós og frosts en sá hópur átti að hlaða upp vörðurnar og betrumbæta þær. Í staðinn hjálpaði hópurinn við mælingar. Lattahópurinn var með stóra stiku sem við fengum að láni hjá bænum. Sá hópur hjálpaði kíkishópnum að mæla hornin rétt. Síðast en ekki síst var það svo fjölmiðlahópurinn (sem við teljum hafa haft mikilvægasta hlutverkið) en var það að taka myndir og myndbönd af mælingunum og að skrifa þessa frétt. Lesa meira
 
Úr vinnslusal

Margir hafa fengið vinnu í Skinney Þinganesi - 08.11.2008 Nóvember

Margir hafa undanfarið hringt í Skinney Þinganes til að vita hvort ekki er þar vinnu að fá og að sögn Sverris Aðalsteinssonar hafa margir haft heppnina með sér og fengið vinnu í síldinni eða við önnur störf hjá fyrirtækinu. Skinney Þinganes hefur aðstöðu fyrir aðkomufólk í gistiheimili við Hvannabraut sem Gistiheimilið Hvammur á. Hér er allt fullt af síld og fiski segir Sverrir, skipin ná í síldina vestur á Breiðafjörð þar sem hún hefur haldið sig undanfarið. Þó þetta sé löng sigling þá hlýtur að teljast jákvætt að þurfa ekki að leita að síldinni út um allan sjó eins og oft hefur verið og með misjöfnum árangri. Lesa meira
 
Venni og Cardaklija Í Húsasmiðjunni Höfn

Mikill kraftur í Húsasmiðjunni á Höfn - 07.11.2008 Nóvember

Nú eru jólavörurnar byrjaðar að streyma inn og allar hillur að fyllast af fallegum vörum, svo sem jólahúsum, skrauti og jólastyttum. Að sögn Kristinns (Venna) verslunarstjóra þá ætlar Húsasmiðjan að selja allar serírur á sama verði og í fyrra og ætla ekki að láta gengið trufla verðlagninguna. Venni segir að næstu föstudaga mun Húsasmiðjan á Höfn bjóða upp á ýmislegt á sannkölluðu tilboðsverði og verða tilboðin auglýst á SkjáVarpi. Venni segir að þeir hafi fundið fyrir örlitlum samdrætti en nú sé þetta að að aukast aftur með tilkomu jólamarkaðarins. Lesa meira
 
Post-it poster

Stuttmynd Hlyns Pálma sigraði á Ljósvakaljóð 2008 - 07.11.2008 Nóvember

Stuttmynd Hlyns Pálmasonar Post-it var valin vinningsmyndin í ár á stuttmyndahátíðinni Ljósvakaljóð sem haldin var í Norrænahúsinu í gærkvöldi. Ljósvakaljóð er stuttmyndahátíð fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára og er haldin í Reykjavík og er unnin í samstarfi við Zik Zak kvikmyndagerð, dvoted.net og Reykjavíkurborg. Að sögn Hlyns Pálmasonar þá er Post-it núna á leiðinni til útlanda á film festival og vildi Hlynur koma á fram þækklæti til allra sem studdu hann við gerð myndarinnar leikurum, "fellow filmmakers", styrktaraðilum, mugison og öllum sem hjálpuðu til. Lesa meira
 
SAF_Thorbergssetur

Þórbergssetur hlaut nýsköpunarverðlaun SAF 2008 - 07.11.2008 Nóvember

Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar voru afhent nú í fimmta sinn við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica í gær fimmtudaginn 6. nóvember. Þórbergssetur hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Í rökstuðningi dómnefndar segir að eftirfarandi hafi einkum legið til grundvallar ákvörðun dómnefndar: Rökstuðningur Er það álit dómnefndar að Þórbergssetur sé einstaklega vandað framtak fólks úr héraði við uppbygginu menningartengdrar ferðaþjónustu. Setrið er ekki aðeins safn tileinkað einum af merkari rithöfundum þjóðarinnar. Lesa meira
 
Matís opnar á Höfn

Þetta er stór og mikill dagur fyrir okkur Hornfirðinga - 06.11.2008 Nóvember

Matís opnaði vöruþróunarsmiðju hér á Hornafirði í gær. Sannarlega gleðilegt og nú geta fyrirtæki og einstaklingar sem hug hafa á nýsköpun í matvælaiðnaði nýtt frábæra aðstöðu og tæki Matís hér á Hornafirði. Hjalti Þór Vignisson flutti af því tilefni eftirfarandi ræðu: "Þetta er stór og mikill dagur fyrir okkur Hornfirðinga þegar opna á þessa Matvælasmiðju. Starfsemi Matís hér á Hornafirði hefur nefnilega bæði gildi fyrir matvælaframleiðslu í heild sinni en líka mjög mikilvægt gildi fyrir byggðaþróun hér í þessu héraði. Síðustu atburðir og breytingar á atvinnulífi okkar landsmanna leiða í ljós hversu mikilvæg matvælaframleiðsla er þjóðinni. Lesa meira
 
WOW

Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs - 06.11.2008 Nóvember

Ráðstefnan Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs verður haldin á Höfn og Smyrlabjörgum 7.-8. nóvember næstkomandi. Ráðstefnan er á vegum Sveitarfélags Hornafjarðar og er Ríki Vatnajökuls framkvæmdaraðili hennar. Mörg áhugaverð erindi verða á dagskrá og sérstaklega mikilvægt fyrir þá sem búa á áhrifasvæðum Vatnajökulþjóðgarðs að mæta. Eins og sést á dagskránni hefst ráðstefnan á föstudegi á Höfn en um kvöldið flytur fólk sig um set yfir á Hótel Smyrlabjörg þar sem haldin verður Uppskeruhátíð Ríki Vatnajökuls og Ferðamálafélags A-Skaftafellssýslu. Lesa meira
 
30-05-06_101

Allir kallar seldir - nema þeir sjálfir - 06.11.2008 Björgunarfélag : Fréttir

Um helgina stóð Slysavarnarfélagið Landsbjörg fyrir átakinu "Neyðarkall frá björgunarsveitum" þar sem seldur var lítill sjóbjörgunarkall á lyklakippu. Félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar stóðu við Nettó í miðbæ og N1 á Vesturbraut föstudag og laugardag, á föstudeginum voru félagsmenn með tvo vélsleða fyrir utan og voru þér óspart notaðir til að skoða og hnoðast á. Skemmst er frá því að segja að allir kallar voru seldir - nema þeir sjálfir og ljóst að hornfirðingar og landsmenn allir kunna vel að meta störf sjálfboðaliða félagsins. Landsmenn styrktu ekki einungis björgunarsveitirnar fjárhagslega með kaupum á Neyðarkalli heldur einnig með góðu viðmóti sem gerði söluna afar skemmtilega fyrir sjálfboðaliðana en margir færðu þeim góðar þakkir fyrir störf þeirra að björgunar- og slysavarnamálum. Lesa meira
 
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli

Enginn skortur á jólatrjám í ár - 06.11.2008 Nóvember

Hornfirðingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af skorti á jólatrjám verði engin innflutt jólatré á boðstólum, við eigum okkar jólaland í Haukafelli þar sem hægt er að fá tré af öllum stærðum bæði furu eða greni. Rannveig Einarsdóttir segir skógræktarfélagið fyllilega geta séð um heimamarkaðinn hér og fyrir síðustu jól hafi Kiwanismenn selt greni-og furutré úr Haukafelli og öll torg-jólatré á svæðinu hafi einnig verið þaðan. Fólki hefur undanfarin ár verið gefinn kostur á að koma í Haukafell fyrir jólin og velja sér jólatré Lesa meira
 
Girða meðfram þjóðvegi 1

Girt meðfram þjóðvegi 1 - 05.11.2008 Nóvember

Vegagerðin bauð út í sumar verkefni sem er að setja upp nýjar girðingar og viðgerð á girðingum sem fyrir eru meðfram þjóðveginum frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljóti. |nl|Tveir verktakar buðu í verkið en hætt var við bæði tilboðin svo samið var við Jón Pálsson verktaka á Höfn og var áætlaður kostnaður um 20 milljónir kr. við girðingar og við pípuhlið um 5 m.kr. Nýjar girðingar verða 18.3 km langar og viðhald og endurbætur girðinga 28,5 km. Girðingavinnu í haust er að ljúka og búið að girða 12.5 km og yfirfara 4 km girðinga sem fyrir eru. Stefnt er á að ljúka verkinu næsta vor og setja pípuhlið á nokkra afleggjara þannig að blessaðar vegarollurnar og lömbin þeirra heyra þá vonandi sögunni til hvað varðar þetta svæði. Lesa meira
 
Handraðinn sló öll sölumet í sumar

Handraðinn sló öll sölumet í sumar - 04.11.2008 Nóvember

Handraðinn, verslun handverksfólks á Hornafirði, hefur hreinlega blómstrað í sumar og aldrei hefur verið selt eins mikið af hannyrðum þar eins og á þessu ári segir Guðrún Finnsdóttir formaður Handraðans. Það eru ekki bara útlendingar sem þessar vörur kaupa því íslenskum kaupendum hefur fjölgað jafnt og þétt sem er sérlega ánægjulegt. Guðrún segir að vöruúrval sé bæði fjölbreytt og mikið og flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Mest er keypt af peysum, vestum, húfum, grifflum og vettlingum. Jólamarkaður verður opnaður seint í þessum mánuði og verður hann fjölbreyttur að vanda. Lesa meira
 
Greinilega gaman að byggja sundlaug

Góður gangur í sundlaugarframkvæmdum - 04.11.2008 Nóvember

Lesandi vefsins erlendis vill fá fréttir af hvernig gengi með sundlaugarbygginguna og til að uppfylla þær óskir brá fréttamaður vefsins sér á byggingarstaðinn sl.laugardag. Að venju var þar unnið á fullu, múrarar voru að ganga frá allskonar niðurföllum og búnaði í sjálfa sundlaugina áður en dúklagningasérfræðingurinn kemur að dúkleggja núna í vikunni. Þá var einnig verið að setja rennibrautirnar saman og koma þeim fyrir. Gunnar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Mikaels ehf . sagði að verkið gengi ljómandi vel og það væri unnið þar á öllum vígstöðum og nú væri að koma heildarmynd á þetta allt. Lesa meira
 
Framhaldsnám

Gróska í framboði starfsnáms á framhaldsskólastigi - 02.11.2008 Nóvember

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Verkmenntaskóli Austurlands hafa með sér samstarf um framboð styttri starfsnámsbrauta sem einkum eru ætlaðar fullorðnum. Yfirleitt er um fjarnám að ræða, oft með fjarfundasniði, sem býður upp á þann kost að stunda námið með vinnu í heimabyggð. Um þessar mundir eru starfræktar fjórar brautir og þrjár nýjar í undirbúningi. Ekki er því hægt að segja annað en að fjölbreyttir möguleikar bjóðist til símenntunar á framhaldsskólastigi á Austurlandi. Lesa meira
 
Nýir starfsmenn háskólasetursins ásamt forstöðumanni og stjórnarformanni

Fjórir nýir starfsmenn á Háskólasetrinu - 01.11.2008 Nóvember

Að undanförnu hefur verið mikill vöxtur í starfsemi Háskólasetursins á Hornafirði, ekki síst í verkefnum sem tengjast Vatnajökulsþjóðgarði. Háskólasetrið fékk á síðasta ári myndarlegt framlag frá ríkisstjórninni í tengslum við mótvægisaðgerðirnar vegna samdráttar í þorskafla en einnig hafa sértekjur þess aukist verulega vegna nýrra verkefna sem það hefur sjálft séð um að afla. Ber þar fyrst að geta NEED-verkefnisins sem er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni um þróun umhverfismenntar og fræðandi ferðaþjónustu sem Háskólasetrið leiðir hér á landi og sem hlotið hefur þriggja ára starfsstyrk frá Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Þá hefur setrið tekið að sér ráðgjöf við gerð verndaráætlana fyrir bæði Suður- og Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og hefur einnig, með góðum stuðningi frá Vaxtarsamningi Austurlands, hafið viðamiklar rannsóknir á áhrifum þjóðgarðsins á samfélögin í grannbyggðum hans. Loks má nefna margvíslegt samstarf Háskólasetursins og Ríki Vatnajökuls sem ætlunin er að efla enn frekar á næstu mánuðum. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica