Beint í leiðarkerfi vefsins.
Síldveiðiskipið Ásgrímur Halldórsson landaði í fyrranótt 900 tonnum af góðri síld hjá Skinney Þinganesi. Síldin veiddist vestur í Hvammsfirði og mun skipið halda aftur á miðin þar í dag. Birtingur(áður Áskell) er á leiðinni til Hafnar með 750 tonn af síld. Þriðja síldveiðiskipið hjá Skinney Þinganesi, Jóna Eðvalds, leggur af stað heim frá Póllandi í dag en þar hefur verið unnið að breytingum og endurbótum á skipinu og mun skipið fara á síldveiðar.
Fyrir nokkrum dögum landaði Ásgrímur Halldórsson 540 tonnum af síld sem hann fékk í Breiðamerkurdýpi í tveim veiðiferðum.
Lesa meira