September

Enterprice

Súpa og kynning í Nýheimum á samstarfsmöguleikum í Evrópu - 26.09.2008 September

Mánudaginn 29. september verður haldin súpufundur í fundarsal Nýheima og hefst hann klukkan 12:00. Fundurinn er ætlaður einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum, rannsóknaaðilum, og opinberum aðilum. Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð verður með kynningu á möguleikum fyrirtækja, stofnana og rannsóknaaðila á samstarfi við sambærilega aðila í Evrópu. Sérstaklega verður farið yfir verkefni á sviði tækniyfirfærslu, samvinnu, rannsókna og styrkveitinga Evrópusambandsins. Lesa meira
 
Litla Líbanon Yarmouth Nova Scotia

Líbanskt kvöld á Humarhöfninni - 23.09.2008 September

Tilefni þess að okkur á Humarhöfninni datt í hug að halda líbanskt kvöld á er að þegar ég og fjölskylda mín bjuggum í Nova Scotia, Kanada, duttum við ofan á yndislegan veitingastað sem heitir Little Lebanon. Litla Líbanon er ákaflega lítill og yfirlætislaus staður eða eins og kaninn segir "not more than a hole in the wall" og tekur um 15 manns í sæti. Eigendurnir eru hjón frá Líbanon, Peter og ..... - við komumst aldrei að því hvað konan hans heitir því hún var alltaf á bak við í eldhúsinu og eldaði þennan dýrindis mat á meðan Peter tók pantanir og bar fram. Ástæðan fyrir því að við vissum af henni á bak við var að Peter kallaði oft "jalla, jalla" (fljót, fljót) þegar mikið var að gera. Við urðum strax fastagestir á Litlu Líbanon og fórum þangað að minnsta kosti vikulega og eignuðumst okkar uppáhaldsrétti þannig að þegar við komum spurði Peter gjarnan "same as usual" í stað þess að rétta okkur matseðil. Lesa meira
 
Jetstream Ernir Air

15% aukning flugfarþega fyrstu 8 mánuði ársins - 23.09.2008 September

Flugfélagið Ernir flaug sitt annað sumar til Hornafjarðar í ár og gekk það mjög vel. Aukning miðað við fyrstu 8 mánuði 2007 borið saman við 2008 var um 15%. Hins vegar var um 20-30% aukning í dagsferðapakka sem Flugfélagið Ernir hefur verið að leggja töluverða áherslu á sem og aukning erlendra ferðamanna á eigin vegum. Fjölgun farþega má aðallega rekja til stundvísi, persónulegrar og góðrar þjónustu og áreiðanleika. Þessir þættir eru ein besta markaðssetning og kynning á félaginu. Hvað erlenda ferðamenn varðar hefur áherslan verið lögð á að kynna Hornafjörð sem áfangastað ásamt því að bjóða eftirsóknarverða dagsferðapakka. Lesa meira
 
jan+febr2008

Vika símenntunar - 20.09.2008 September

Nú fer í hönd árleg vika símenntunar 22. - 28. sept. Markmið með henni er að hvetja fólk til að leita sér þekkingar og minna á að öll fræðsla nýtist til góðs í leik og starfi. Starfsmenn símenntunarmiðstöðvanna verða á ferð og flugi þessa viku að kynna starfsemi sína og veita ráðgjöf varðandi nám og störf. Mörgum finnst erfitt að hugsa um að hefja nám eftir langa fjarveru frá skólabekk, þótt þá langi til að læra. Ragnhildur, námsráðgjafi Þekkingarnetsins býður upp á opið örnámskeið í námstækni og hugrænni sjálfshvatningu í Nýheimum í hádeginu á föstudag. Hún hvetur fólk til að koma, fá sér súpu og brauð í teríunni og taka svo þátt í námskeiðinu en það hefst kl. 12.30 - 12.45 og er ókeypis. Einnig er vert að benda á sýningu Menningarmiðstöðvarinnar á 35 ára sögu Karlakórsins Jökuls. Lesa meira
 
Grjótkassar í Hvalnesskriðum

Skriðufall og grjóthrun - 17.09.2008 September

Aurskriða lokaði veginum um Þvottárskriður í nótt. Aurskriðan sem var um 40-50 m breið kom úr gili sem myndast hefur í skriðunum frá því vegur var lagður þar og smá stækkað og er nú orðið 15-20 m. djúpt. Aurskriðan stöðvaðist við vegriðið á vegarbrúninni og var um 1m.á þykkt þar sem hún var þynnst .Enn stærri spýja kom úr gilinu sl. fimmtudagskvöld en náði ekki alveg að vegriðinu svo vegurinn lokaðist ekki alveg. Þá þurftu vegagerðarmenn að fjarlægja tvo stóra steina, um eða yfir 700 kg hnullunga, af veginum í Hvalnesskriðum. Nokkrar skemmdir urðu eftir steinana á grjótkössunum sem settir voru upp í sumar til varnar grjóthruni á veginn. Lesa meira
 
Gustadesign_heimsokn

Ertu kona?, ertu með viðskiptahugmynd? - 16.09.2008 September

Nú er tækifæri fyrir konur með viðskiptahugmynd að koma fram í dagsljósið því Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið hafa auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar. Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir. Kynningarfundur vegna þessa verður haldinn í Nýheimum í dag þriðjudaginn 16. september frá kl. 17-18. Eftir að Ásdís Guðmundsdóttir frá Vinnumálastofnun hefur sett fundinn mun Ágústa Margrét Arnardóttir tösku- og fylgihlutahönnuður koma með innlegg frá frumkvöðlakonu en hún stofnaði og rekur, Gústa Design. Lesa meira
 
Sparisjodur_UmfSindri

Sparisjóðurinn og Umf. Sindri undirrita samstarfssamning - 15.09.2008 September

Sparisjóðurinn á Höfn og Umf. Sindri undirrituðu samstarfssamning nýverið en samkvæmt þeim samningi verður Sparisjóðurinn aðalstyrktaraðili yngri flokka Knattspyrnudeildar Sindra árin 2008 til og með ársins 2011. Stærsti hluti þessa styrks er kostnaður við að endurnýja búningasett yngri flokka Sindra. Yngri flokkar Sindra keppa um allt land og hafa náð góðum árangri bæði í kvenna og karla flokkum, meðal annars Íslandsmeistarar árin 2006 og 2007, og eins í úrslitum innanhúss sem utan. Þess má geta að Sindri er eina liðið á öllu Austurlandi sem er með skráð lið, í öllum flokkum, á Íslandsmót. Lesa meira
 
Cirkus Agora

Sirkustjaldið risið og margar hendur á lofti - 15.09.2008 September

Cirkus Agora kom til Hafnar í gær og var þegar hafist handa við að koma öllum búnaðinum fyrir á túninu neðan við Fiskhólinn. Vegna mikillar vætutíðar síðustu daga er túnið sumstaðar blautt og því ekki auðvelt fyrir þunga flutningavagna að komast um það og varð að draga suma til baka upp á götuna. En sirkusfólkið er öllu vant og lét smá erfiðleika ekki raska ró sinni og þegar flutningatækin voru komin á þurrt var haldið áfram að koma ,,sirkusbúðunum´´ upp. Nú er sirkustjaldið risið og margar hendur á lofti við að gera allt klárt fyrir sýninguna sem hefst kl 19.00 í kvöld. Lesa meira
 
Jóel

Upptökum á stuttmyndinni Jóel lokið - 15.09.2008 September

Undanfarið hefur staðið yfir upptaka á kvikmynd Hlyns Pálmasonar kvikmyndargerðarmanns og félaga á stuttmyndinni Jóel. Upptökum lauk fyrir helgina og nú tekur við klipping og eftirvinnsla sem felur í sér að tengja saman hljóð, mynd og tónlist. Upptökur fóru fram hér í sveitarfélaginu, svo sem út á Hornsfjörum, Framhaldsskólanum, drápsklettum og víðar. Að sögn Hlyns þá verður stuttmyndin um 15 mínútur og fjallar hún um ungan strák sem hefur átt erfitt uppdráttar en sér fram á bjartari daga þegar krossaraklíka ákveður að taka hann í hópinn. Með aðalhlutverk fer Sævar Knútur Hannesson en auk hans koma fram margir skemmtilegar týpur sem allir eru Hornfirðingar. Lesa meira
 
Nýr vegur í Hamarsfirði

Nýr vegur við Rauðuskriður - 13.09.2008 September

Byrjað er á nýjum vegi í Hamarsfirði sem kemur í stað malarvegarins um Rauðuskriður. Nýi vegurinn liggur töluvert nær sjónum og verður um 4 km. langur. Verktaki við þessar vegaframkvæmdir er Háfell í Reykjavík og eru verklok áætluð í ágúst-september á næsta ári. Verið er að skoða svæði fyrir jarðgöng undir Lónsheiði, hvaða leið væri hagkvæmust og hversu löng göngin yrðu og í kjölfarið að ákveða það endanlega hvar göngin verða. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að helst sé talað um að göngin sunnanmegin heiðar komi svolítið neðan og austan við Traðargilsbrúna en að norðan á móts við Rjúpnadal. Lesa meira
 
Dreymir ekki flesta um að búa á svona stað!

Sóknarfæri á Suðausturlandi - 11.09.2008 September

Nýsköpunarmiðstöðin, Impra, hefur hrundið af stað verkefni sem er kallað Sóknarfæri á Suðausturlandi sem kemur til framkvæmda seinni hluta árs 2008 og árið 2009. Það er stuðningsverkefni sérstaklega ætlað framleiðslu og þjónustufyrirtækjum frá Skaftárhreppi að Djúpavogshreppi sem vilja vinna að vexti, nýsköpun eða umbótum í starfsemi sinni. Um er að ræða tvíþætt verkefni sem hefst með greiningu á þörfum fyrirtækis fyrir umbætur og ráðgjöf. Greiningin byggir á greiningartækni sem nefnd er Hagnýt viðmið "Micro Business Review" Líta má á verkefnið sem stöðugreiningu áður en lengra er haldið í ráðgjafa- og stuðningsverkefnum Impru. Lögð er áhersla á að greina hvar vaxtarmöguleikar fyrirtækjanna liggja og þá sérstaklega, framtíðartækifæri og markaðstækifæri. Markmiðið með seinni hluta verkefnisins er að hrinda umbótum i framkvæmd. Hægt er að sækja um styrk til að greiða niður kostnaði vegna aðkeyptrar ráðgjafar. Styrkupphæð er allt að kr. 600.000 gegn jafnháu mótframlagi fyrirtækis. Lesa meira
 
Er_Sindri_ekki_bestur

Arsenalklúbburinn heiðrar minningu Tómasar Inga - 11.09.2008 September

Laugardaginn 13. sept. n.k. munu þrír stjórnarmenn úr Arsenalklúbbnum á Íslandi heimsækja Hornafjörð. Ástæðan fyrir komu þeirra er að þeir vilja heiðra minningu Tómasar Inga Ingvarssonar sem lést 16. nóv. 2007, aðeins 10 ára gamall, með því að færa Grunnskóla Hornafjarðar til eignar treyju áritaða af öllum leikmönnum Arsenal, en Tómas Ingi var gallharður Arsenal maður. Næsta sunnudag, 14. sept., hefði Tómas Ingi orðið 11 ára. Í tilefni þessa býður Arsenalklúbburinn á Íslandi, Grunnskólinn og Knattspyrnudeild Sindra öllum 6. bekkingum og foreldrum þeirra til athafnar á íþróttavellinum (íþróttahúsinu ef rignir) laugardaginn 13. sept. frá kl. 13:00- 14:00. Þar verður treyjan afhent og síðan verður farið í ýmsa leiki með ungum sem öldnum og örugglega einhvern fótbolta. Lesa meira
 
Hoffellsjökull

Hann varð alveg ofboðslega hissa þegar ég sagði honum frá veskinu - 10.09.2008 September

Fyrr í vikunni fannst peningaveski inn við Hoffellsjökul sem í voru peningar, greiðslukort og skilríki eigandans sem er þjóðverji búsettur á Íslandi. Var það erlendur ferðamaður sem var ásamt fleirum á göngu við jökulölduna sem fann veskið. Á leiðinni til baka hitti maðurinn Jón Helgason vegagerðarmann þar sem hann hafði brugðið sér í berjamó rétt við sumarhús sitt Birkifell að ná í ber í skyrið. Var sá erlendi að vandræðast með það hvernig hann gæti komið veskinu í réttar hendur svo úr varð að Jón tók við veskinu og fékk síðan Heiðu dóttur sína í lið með sér að hafa upp á eigandanum. Eftir margar árangurslausar tilraunir við að ná sambandi við veskiseigandann tókst loks að ná í hann í farsímann og var hann þá í Vík í Mýrdal á leið til Reykjavíkur. Lesa meira
 
Bryggjuframkvæmdir

Bryggjuframkvæmdir - 10.09.2008 September

Framkvæmdir við bryggjuna ganga orðið alveg þokkalega segir Olgeir Jóhannesson sem sér um framkvæmdir við stækkun og lengingu hafskipabryggju í Álaugarey. Reknar verða niður 132 stálþilsplötur meðfram bryggjukantinum og hefur gengið seint og illa að reka þær niður. Ástæða þessara erfiðleika segir Olgeir vera þá að Siglingastofa var ekki búin að taka prufur og rannsaka aðstæður þarna en þar eru klappir sem erfitt hefur reynst að vinna á. Kraninn sem notaður var fyrst var ekki nógu aflmikill til að reka plöturnar niður en nú hefur verið bætt úr því og kröftugasti hamar landsins fenginn á staðinn. Lesa meira
 
Hálffleygur fýlsungi

Fýlsungar á leið til sjávar - 09.09.2008 September

Nú er sá tími sem að fýlsungar sækja í að sitja á þjóðvegunum og hreifa sig ekki fyrir umferð bíla enda ófærir um að fljúga og ekkert nema aðgát góðra ökumanna bjargar þeim. Í morgun var fýlsungi á bílastæði í Miðtúninu á Höfn og var ekkert hress með að fá ekki að vera þar í friði, var þó búinn að hvíla sig nóg til að geta hafið sig til flugs og hagstæður vindur hjálpaði til. Lesa meira
 
Sigurður Ólafsson SF á innsiglingu

Humarveiði hafin á ný - 08.09.2008 September

Fjórir Hornafjarðarbátar hafa farið til humarveiða á ný og er veiði góð. Sigurður Ólafsson landaði 1200 kg af stórum humarhölum úr sinni fyrstu veiðiferð á þessu nýja fiskveiðiári sem hófst 1.sept. Meira er af humri í Breiðamerkurdýpi en í Lóns-og Hornafjarðardýpi en humarinn þar smærri. Bátarnir mega stunda humarveiði út september. Að sögn Ólafs Einarssonar á Hafnarvoginni byrjar fiskveiðiárið vel og er mokveiði hjá handfærabátum og svona sæmilega góður hjá línubátum. Lesa meira
 
Vestmenningur VN 360

Landa gulllaxi hjá Skinney Þinganesi - 06.09.2008 September

Veiðiskipin Fram og Vestmenningur frá Vestmanna í Færeyjum lönduðu í dag 250 tonnum af gulllaxi og fer aflinn til vinnslu hjá Skinney Þinganesi. Þetta er þriðja löndun þessara skipa hér í sumar og líklega sú síðasta þar sem búast við að síldveiðar fari að hefjast aftur. Gulllaxinn er í útliti líkur síldinni þó heldur stærri, mjög feitur fiskur og með áberandi stór augu. Gulllaxinn er heilfrystur til manneldis og pakkað á sama hátt og síld og loðnu. Skipin hafa verið á veiðum á Færeyjabanka með tvíburatroll. Lesa meira
 
Cirkus AgorA

Cirkus AgorA á Höfn í Hornafirði - 05.09.2008 September

Fjölleikahúsið Cirkus AgorA kom til Íslands með Norrænu 26. ágúst með 150 metra langa vagnalest og eru þau á ferð um landið og verða með sýningar á 10 stöðum frá 29. ágúst til 16. september. Sirkusinn verður á Höfn mánudaginn 15. september og er stefnt að því að sirkustjaldið verði staðsett á sama stað og UMFÍ tjaldið var. Sirkus Agora er að fagna 20 ára starfsafmæli sínu þetta árið og kusu forráðamenn Agora að koma til Íslands til að fagna þeim áfanga.Sirkusinn hefur ferðast um Noreg í allt sumar og hafa yfir 150,000 manns séð sýningu þeirra í sumar sem fær frábæra dóma.Hér er um að ræða frábæra fjölskylduskemmtun og er þetta einstakt tækifæri til að sjá alvöru sirkusfólk að störfum en sirkusinn er samansettur af mörgum þjóðarbrotum svo sem sígaunum. Lesa meira
 
Á Humarhöfninni

Hanastélskvöld á Humarhöfninni. - 04.09.2008 September

Á morgun föstudag 5.sept. mun María Kristjánsdóttir hrista saman hanastél fyrir gesti Humarhafnarinnar. María sem er fædd og uppalin í Svíþjóð er íslensk og kom hingað til Hafnar í Hornafirði til að vinna í sumar og til að læra betur íslensku. María hefur tekið ýmiskonar námskeið í gerð "kokteila" eða hanastéla og nú býðst okkur Hornfirðingum tækifæri til að njóta kunnáttu hennar áður en hún yfirgefur okkur aftur. |María hefur unnið sem þjónn á Humarhöfninni í sumar og lenti í því skemmtilega atviki að þjóna sænska sendiherranum og hans fjölskyldu eittt kvöld í sumar, án þess að vita hver þau væru. Að máltíð lokinni rétti sendiherrann Maríu nafnspjaldið sitt og bauð henni vinnu í sendiráðinu í Reykjavík þegar hún hætti í Humarhöfninni. María er sem sagt á förum og við óskum henni velfarnaðar í nýju starfi í sendiráðinu en fengum hana til að kveðja okkur með "kokteilakvöldi". Lesa meira
 
Grænkál

Lífrænt ræktað grænmeti í ríki Vatnajökuls. - 04.09.2008 September

Föstudaginn 6.sept. verður grænmetismarkaður í Verslun N1 á Vesturbraut, þar sem boðið verður upp á ýmsar tegundir grænmetis s.s. spergilkál, grænkál, klettasalat, gulrófur, grænkál og kartöflur ,allt lífrænt ræktað. En hverjir standa að þessu? Jú það eru þau Anna og Ari hjón í Hólabrekku og við forvitnuðumst um hvers vegna þau fóru út í þessa ræktun. Anna varð fyrir svörum og segist allaf hafa haft áhuga á grænmetisrækt, sem hún hafi lítið gert með fyrr en þau hjón hófu rekstur Sambýlisins Hólabrekku, en meginþáttur stuðnings og meðferðarstarfsins felst í því að íbúar sambýlisins hafi verkefni til að þjálfa vinnufærni og úthald. Nauðsynlegt hafi verið auka við þau verkefni sem fyrir voru og grænmetisræktunin er vel til þessa fallin, þar sem hún gefur líka tilefni til útivistar yfir sumartímann. Upphaflega var uppskeran hugsuð fyrir heimilið en með reynslunni öðluðumst við svo góð tök á ræktuninni að einn góðan veðurdag var uppskeran vaxin okkur yfir höfuð, ef svo má að orði komast. Það þurfti því að setja framleiðsluna á markað. Lesa meira
 
Fornbílar

Fornbílar á Höfn 9-10. september - 02.09.2008 September

Dagana 7. til 12. sept. verða á ferð um landið kringum 65 fornbílar á vegum bresks akstursíþróttaklúbbs HERO (hero.org.uk). Keppni þessi er álitin það stærsta í þessum flokki nú í ár og er líkt við keppnina sem var ekin milli Peking og Parísar á síðasta ári. Margir af bestu keppendum fornbíla eru meðl þeirra sem taka þátt í þessari keppni, en þarna er að finna keppendur frá yfir tíu þjóðlöndum. Áætlaður keppendafjöldi eru 65 bílar, og er dýrasti bíllinn sem reiknað er með að komi hingað metinn á 380 milljónir króna. Þeir munu aka umhverfis landið, rangsælis, þessa daga, í samblandi af góðakstri og ökuleikni, því er umferðarreglum hlýtt í hvívetna og enginn hraðakstur. Með góðakstri er átt við að ekin sé ákveðin leið á fyrirfram ákveðnum meðalhraða. Síðan eru tímavarðstöðvar einhvers staðar inná leiðunum þar sem mælt er hve langt utan tímamarka á þeim stað viðkomandi er. Svo er það ökuleikni, sem er í raun akstur kringum hindranir t.d. keilur sé annað ekki fyrir hendi. Munu þeir sýna listir sínar á planinu fyrir framan Víkina að morgni 10. september. Lesa meira
 
FAS Busavígsla 2008

Þrautagöngunni lauk svo við Miðbæ - 01.09.2008 September

Nýnemar í FAS mættu í fremur undarlegum fatnaði í skólann á föstudag en þeir voru í svörtum brókum og stuttermabol. Tilefni fatavalsins var að þann dag voru þeir formlega teknir inn í skólann. Við það tækifæri þurfa nýnemar að framkvæma ýmsar þrautir, s.s. að labba afturábak í skólanum eða standa á höndum. Einnig er ætlast til að þeir sýni eldri nemendum tilhlýðilega virðingu. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica