Margir bílaáhugamenn lögðu leið sína framhjá Ásgarði í gærkvöldi
Bílaflutningabílarnir sex, sem komu til Hafnar fyrr í mánuðinum fulllestaðir Volkswagen bílum á leið til Reykjavíkur, sóttu í gær annan bílafarm til Seyðisfjarðar. Þetta voru 36 Volkswagen bílar sem komu með ferjunni Norrænu og fara á bílasýningu sem haldin verður í september. Bílalestin var við Gistiheimilið Ásgarð í nótt og lögðu margir bílaáhugamenn leið sína þar framhjá í gærkvöldi. Reynir Arnarson í Ásgarði sagðist ekki vita hvort von væri á fleiri bílförmum af bílum eða hvort eitthvað af þeim færi sömu leið til baka. Aðspurður sagðist Reynir ánægður með aðsókn í sumar , júní hefði verið svipaður og í fyrra, júlí mun betri en ekki væru komnar tölur fyrir ágúst og síðasta fullbókun í Ásgarði á haustinu er í október.
Með haustinu verður lítið um túristana þá eru það helst þeir sem leið eiga milli landshluta sem koma og gista og fólk sem kemur til að vinna hér einhverja daga í einu eða svona eins og sagt er "sérfræðingar að sunnan".





Skrifa athugasemd