Meistaramót barna í golfi
Það voru vaskir krakkar sem stunduðu golfæfingar í sumar undir styrkri stjórn Kalla og Sturlu golfkennara.
Æfingar voru þrisvar í viku og er stefnan að halda uppi sama hætti næsta sumar.
Til að sjá betur afrakstur sumarsins var haldið Meistaramót 14 ára og yngri fimmtudaginn 28.ágúst s.l..
Spilaðar voru sex holur og skipt var í tvo flokka 11ára og yngri og 12-14 ára.
Eftir hringinn var boðið upp á pizzur og verðlaunafhending fór fram.
Úrslit voru eftirfarandi:
11 ára og yngri:
1. Kristján Júníus Friðriksson 37 högg
2. Hákon Logi Stefánsson 39 högg
12-14 ára:
1. Ívar Örn Valgeirsson 37 högg
2. Darri Snær Nökkvason 41 högg




Skrifa athugasemd