Ágúst
Spanarsnigill
Spanarsnigill
Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7?15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Þessi snigill fannst í Ártúnsholti í Reykjavík í september 2004. Ljósm. Erling Ólafsson.
Mynd 1 af 2
1 2

25.08.2008 Ágúst

Bókstaflega étur allt sem að kjafti kemur

Spánarsnigill fundinn á Hornafirði

Starfsmenn Málningarþjónustunnar ráku upp stór augu á föstudag þegar þeir sáu risavaxinn snigil á planinu fyrir framan fyrirtæki þeirra við Víkurbrautina og skelfingu lostnir hringdu þeir í Björn Arnarsson starfsmann Menningarmiðstöðvarinnar og upplýstu hann um fundinn. Að sögn Björns Arnarssonar þá er hér um að ræða Spánarsnigil sem er af brekkusniglaætt og er hann meinlaus en mjög skæður þar sem hann kemst í t . d. kartöflugarða. "Hann bókstaflega étur allt sem að kjafti kemur" segir Björn. Þetta er í fyrsta skipti sem snigill af þessari tegund finnst hér í s veitarfélaginu. Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7-15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum.

Samkvæmt upplýsingum frá náttúrufræðistofnun Íslands þá er Spánarsnigill (Arion lusitanicus) alræmd plága í nágrannalöndum okkar, en fannst í fyrsta skipti hér á landi haustið 2003.

Landnám Spánarsnigla hér á landi er u slæm tíðindi. Full ástæða er til að mæta þeim af hörku. Á Náttúrufræðistofnun Íslands er reynt að fylgjast grannt með framvindu mála. Bendir Náttúrufræðistofnun á að þeir sem ganga fram á þessa stóru rauðu snigla fangi þá og komi þeim til stofnunarinnar og leggi þar með til upplýsingar um útbreiðslu þeirra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica