Landnámshænurnar í Skaftafelli
Landnámshænur eru orðnar vinsælar á Íslandi. Eggin þykja sérlega góð og þær eru mikið augnayndi. Hér á Hornafirði þrífast þær vel, a.m.k. á hólum og hæðum eins og á Miðskeri og í Skaftafelli. Heyrst hefur að "Handraðskonur" líti hanana á Miðskeri hýru auga og sækist eftir stélfjöðrum í skraut. Trúlega er Hreinn að hugsa um gæludýrauppeldi, fremur en notagildi, þar sem hann situr í miðjum hænsnahóp í Skaftafelli. Ragnar Frank Kristjánsson fyrrum þjóðgarðsvörður í Skaftrafelli átti þennan myndarlega og litríka hænsnahóp sem er á myndinni og voru þetta mikil dekurdýr.
Þegar hann flutti í Borgarfjörðinn taldi hann ekki ráðlegt að flytja hænurnar með svo hann fól Regínu Hreinsdóttur núverandi þjóðgarðsverði að annast hænurnar og hanana tvo.





Skrifa athugasemd