Veðrið lék við okkur alla helgina
Helgina 18- 20. júlí fór Ferðafélagið í jeppa og gönguferð á Skaftártungnaafrétt. Gist var 2 nætur í Hólaskjóli. Á laugardeginum var ekið að Sveinstindi og gekk ríflega helmingur hópsins á Sveinstind, á meðan hinir keyrðu norður á Breiðbak. Útsýni af báðum þessum stöðum er geysimikið og er talið að af Sveinstindi sjáist um 40% af Íslandi í góðu skyggni. Þarna ber líka á að líta hina ótrúlega miklu náttúruperlu Langasjó, sem er stærsta blátæra fjallavatn landsins, tíunda dýpsta og liggur í djúpum dal á milli Tungárfjalla og Fögrufjalla. Á bakaleiðinni var ekið að Botnlangalóni og um Faxasund.
Á sunnudeginum gekk hluti hópsins frá Hólaskjóli í Álftavatnakrók sem er létt og skemmtileg leið, með fossum, hrauni og skógarkjarri. Og eftir hressilegt fótabað í Syðri-Ófæru var gott að næra sig á grilluðu lambakjöti sem þeir sem fóru akandi voru búnir að matreiða við skálann í Álftavatnakróki. Á bakaleiðinni var ekið yfir steinbrúna á Syðri- Ófæru og síðan sem leið liggur í Hólaskjól. Veðrið lék við okkur alla helgina, um 20 stiga hiti og bjartviðri. Alls fóru 19 manns í þessa ferð og þökkum við þeim kærlega fyrir ánægjulega samveru.





Skrifa athugasemd