Nýir bátar í heimsókn í höfninni
Undanfarna daga hafa tveir norskir smábátar dvalið í höfninni á Hornafriði. Þetta eru Cleopatra fisherman bátar, nýsmíði frá Trefjum í Hafnarfirði. Ástæða þess að þessir tveir bátar eru á Hornafriði er að sigla á þeim til Noregs á næstunni. Bátunum var siglt hingað frá Hafnarfirði og er þetta byrjunarreitur fyrir siglingu til Þrándheims þar sem bátarnir verða til sýnis á sjávarútvegssýningu sem hefst 12 ágúst . Að lokinni sýningu verður þeim siglt til sinnar heimahafnar í norður Noregi nánar tiltekið í Kjöllerfjörd og Vanna.
Farið verður héðan til Færeyja og þaðan til Þrándheims og er áætlað að siglingin taki tvo sólarhringa. Það eru Hornfirðingarnir Unnsteinn Þráinsson og Grétar Vilbergsson sem sigla öðrum bátnum en Hörður Harðarson frá Trefjum ásamt Norðmanninum Jonna Petersen sigla hinum. Á leiðinni frá Hafnarfirði til Hornafjarðar fengu bátarnir vonsku veður hluta leiðarinnar og reyndust þar vel en eins og þeir Unnsteinn og Grétar sögðu þá hafa samskonar bátar sem hér eru á Hornafirði sýnt og sannað að þetta eru góð sjóskip og fær í flestan sjó.
Trefjar í Hafnarfirði hafa selt marga sambærilega báta til Noregs og víðar erlendis.





Skrifa athugasemd