Ágúst

Volkswagen

Margir bílaáhugamenn lögðu leið sína framhjá Ásgarði í gærkvöldi - 29.08.2008 Ágúst

Bílaflutningabílarnir sex, sem komu til Hafnar fyrr í mánuðinum fulllestaðir Volkswagen bílum á leið til Reykjavíkur, sóttu í gær annan bílafarm til Seyðisfjarðar. Þetta voru 36 Volkswagen bílar sem komu með ferjunni Norrænu og fara á bílasýningu sem haldin verður í september. Bílalestin var við Gistiheimilið Ásgarð í nótt og lögðu margir bílaáhugamenn leið sína þar framhjá í gærkvöldi. Reynir Arnarson í Ásgarði sagðist ekki vita hvort von væri á fleiri bílförmum af bílum eða hvort eitthvað af þeim færi sömu leið til baka. Aðspurður sagðist Reynir ánægður með aðsókn í sumar , júní hefði verið svipaður og í fyrra, júlí mun betri en ekki væru komnar tölur fyrir ágúst og síðasta fullbókun í Ásgarði á haustinu er í október. Lesa meira
 
Verðlaunahafar meistaramóti barna 2008

Meistaramót barna í golfi - 29.08.2008 Ágúst

Það voru vaskir krakkar sem stunduðu golfæfingar í sumar undir styrkri stjórn Kalla og Sturlu golfkennara. Æfingar voru þrisvar í viku og er stefnan að halda uppi sama hætti næsta sumar. Til að sjá betur afrakstur sumarsins var haldið Meistaramót 14 ára og yngri fimmtudaginn 28.ágúst s.l.. Spilaðar voru sex holur og skipt var í tvo flokka 11ára og yngri og 12-14 ára. Eftir hringinn var boðið upp á pizzur og verðlaunafhending fór fram. Lesa meira
 
Stígamót

Stígamót bjóða upp á þjónustu á Suðurlandi - 26.08.2008 Ágúst

Stígamót bjóða upp á ókeypis viðtalsþjónustu og sjálfshjálparstarf fyrir konur og karla sem beitt hafa verið hvers kyns kynferðisofbeldi. Þjónustan hefur hingað til fyrst og fremst nýst á höfuðborgarsvæðinu. Eftir myndarlega fjáröflun Zontakvenna hefur verið ákveðið að auka og bæta þjónustuna við fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins. Þegar er hafin reglubundin þjónusta á Austurlandi og næst er það Suðurland. Starfsfólk Stígamóta mun kynna tilraunaverkefnið á Höfn í Hornafirði, í Vestmannaeyjum og í Árborg dagana 1.-4. september. Haldnir verða lokaðir fundir með fagfólki á hverjum stað, framhaldsskólar verða heimsóttir og boðið verður upp á opna kynningarfundi, ásamt kynningum í fjölmiðlum. Lesa meira
 
Spanarsnigill

Bókstaflega étur allt sem að kjafti kemur - 25.08.2008 Ágúst

Starfsmenn Málningarþjónustunnar ráku upp stór augu á föstudag þegar þeir sáu risavaxinn snigil á planinu fyrir framan fyrirtæki þeirra við Víkurbrautina og skelfingu lostnir hringdu þeir í Björn Arnarsson starfsmann Menningarmiðstöðvarinnar og upplýstu hann um fundinn. Að sögn Björns Arnarssonar þá er hér um að ræða Spánarsnigil sem er af brekkusniglaætt og er hann meinlaus en mjög skæður þar sem hann kemst í t . d. kartöflugarða. "Hann bókstaflega étur allt sem að kjafti kemur" segir Björn. Þetta er í fyrsta skipti sem snigill af þessari tegund finnst hér í s veitarfélaginu. Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7-15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Lesa meira
 
WV-_bilalest

VolksWagen bílalest fyrir utan Ásgarð - 23.08.2008 Ágúst

Það voru fimm bílaflutningavörubílar hlaðnir af Volkswagen ökutækjum fyrir framan Gistiheimilið Ásgarð í gærmorgun og vakti það mikla athygli bæjarbúa. Á visir.is í dag kemur fram að bílarnir voru fluttir til landsins vegna stærstu bílasýningar sem haldin hefur verið hér á landi n.k. september. Þá verður sjötta kynslóð VW Golf heimsfrumsýnd á Íslandi og stendur Volkswagen fyrir kynningarátaki í þrjár vikur Eru u.þ.b. 1500 blaðamenn væntanlegir til landsins vegna þessa. Blaðamennirnir sem hingað koma verða í 80 manna hópum og staldrar hver hópur hér við í tvo daga. Komið verður upp fræðslu- og sýningaraðstöðu í Bláfjöllum og þaðan verður farið í reynsluakstur á nýju bílunum um næsta nágrenni, að Gullfossi og Geysi, Kerinu, Nesjavöllum og Bláa lóninu. Lesa meira
 
Skútan

Hollenska skútan farin úr höfninni - 22.08.2008 Ágúst

Hollenska skútan sem legið hefur við bryggju í Hornafjarðarhöfn frá því í september í fyrra lét úr höfn sl. miðvikudag undir stjórn nýrra eigenda. Skútan kom frá Hollandi en þar höfðu einhverjir óprúttnir náungar stolið henni og fengið menn,sem ekki vissu um að neitt athugavert væri í gangi, til að sigla henni hingað til Hornafjarðar þar sem "eigendurnir" ætluðu að vitja hennar. Upp komst um þjófnaðinn og var skútan kyrrsett hér og hefur hún síðan verið í góðri umsjá hafnarvarða Hornafjarðarhafnar. Nú hafa nokkrir íslenskir siglingakappar keypt skútuna af hollenska tryggingafélaginu sem orðinn var eigandi hennar og eftir að hafa yfirfarið skútuna var látið úr höfn og haldið til Þorlákshafnar. Lesa meira
 
Á leið í skóla

Fréttatilkynning frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg um upphaf skóla. - 22.08.2008 Ágúst

Í þessari viku hefst starf í skólum landsins. Þá þyngist umferðin og margir nýir vegfarendur taka þátt. Að því tilefni vill félagið minna bæði foreldra og ökumenn á mikilvægi þess að huga að öryggi barna á leið í skóla, sérstaklega þeirra sem yngri eru. Aldrei er of mikið gert af því að fræða yngstu vegfarendurna um hvernig öryggi þeirra er best tryggt á leið þeirra til skóla. Hjólreiðar: Fari börn á hjóli til skóla þarf að aðstoða þau við að velja öruggustu leiðina. Leggja þarf áherslu á að hjóla eigi eftir stígum/gangstéttum og fara þarf vel yfir hvar og hvernig á að fara yfir götur. Leggja áherslu á að nota gangbrautir, stoppa áður en farið er yfir þær, líta eftir umferð úr báðum áttum og teyma hjólið yfir. Mikil brotalöm er á því að börn noti hjálm en hann ver fyrir alvarlegum höfuðáverkum í allt að 85% tilfella. Því miður er ekki hægt að segja að allir foreldrar standi sig vel í því að stuðla að notkun þeirra þar sem hjálmlausir foreldrar eru alltof algeng sjón. Lesa meira
 
Kvoldsigling_um_Hornafjord._016

Siglt var um Skarðsfjörðinn - 22.08.2008 Ágúst

Síðasta ferð sem Ferðafélagið fór í var kvöldsigling um Hornafjörð með Fjöruferðum. Farnar voru tvær ferðir í frábæru veðri undir leiðsögn Bjartmars Ágústssonar. Siglt var um Austurfjörðinn með viðkomu í Borgey, þar sem allir skriðu í gegn um hellinn eða göngin sem þar eru, einnig fræddi Bjartmar okkur ferðafélagana um helstu eyjar og sker á svæðinu og sagði frá því af hverju Kerlingarey bæri það nafn. En sjón er sögu ríkari í þeim efnum. Alls fóru 28 í þessa ferð og viljum við í Ferðafélaginu þakka þeim fyrir þátttökuna. Einnig viljum við koma á framfæri þökkum til þeirra Bjartmars, Óskars og Hauks hjá Fjöruferðum fyrir samstarfið. Lesa meira
 
Meistaramót Íslands á Laugum í Reykjadal 2008

Glæsilegur árangur á Meistaramóti Íslands á Laugum í Reykjadal - 20.08.2008 Ágúst

Föstudaginn 15. ágúst s.l. lögðu sjö krakkar úr USÚ á stað norður á Lauga í Reykjadal til þess að taka þátt í Meistaramóti Íslands. Mótið hófst kl. 11 á laugardagsmorgni í frábæru veðri. Við áttum 2 keppendur í aldursflokknum 11 ára stelpur, 1 í flokki 12 ára stelpna, 2 í flokki 13 ára telpna, 1 í flokki 13 ára pilta og 1 í flokki 14 ára pilta. Anna Birna Elvarsdóttir kom heim með silfurverðlaun í 60m hlaupi 11 ára stelpna og líka með silfurverðlaun í langstökki. Einar Ásgeirsson tryggði sér silfurverðlaun í 800m hlaupi 14 ára pilta. Allir þessir krakkar stóðu sig með stakri prýði og komust í úrslit í mörgum greinum þó að þau hafi ekki öll komist á verðlaunapall. Við sem vorum með krökkunum þessa helgina þökkum kærlega fyrir okkur. Þau stóðu sig öll vel og voru félagi sínu og okkur öllum til mikils sóma. Lesa meira
 
Hreinn og landnámshænurnar

Landnámshænurnar í Skaftafelli - 20.08.2008 Ágúst

Landnámshænur eru orðnar vinsælar á Íslandi. Eggin þykja sérlega góð og þær eru mikið augnayndi. Hér á Hornafirði þrífast þær vel, a.m.k. á hólum og hæðum eins og á Miðskeri og í Skaftafelli. Heyrst hefur að ?Handraðskonur? líti hanana á Miðskeri hýru auga og sækist eftir stélfjöðrum í skraut. Trúlega er Hreinn að hugsa um gæludýrauppeldi, fremur en notagildi, þar sem hann situr í miðjum hænsnahóp í Skaftafelli. Ragnar Frank Kristjánsson fyrrum þjóðgarðsvörður í Skaftrafelli átti þennan myndarlega og litríka hænsnahóp sem er á myndinni og voru þetta mikil dekurdýr. Lesa meira
 
Jeppaferd_Holaskjol_2008_022

Veðrið lék við okkur alla helgina - 18.08.2008 Ágúst

Helgina 18- 20. júlí fór Ferðafélagið í jeppa og gönguferð á Skaftártungnaafrétt. Gist var 2 nætur í Hólaskjóli. Á laugardeginum var ekið að Sveinstindi og gekk ríflega helmingur hópsins á Sveinstind, á meðan hinir keyrðu norður á Breiðbak. Útsýni af báðum þessum stöðum er geysimikið og er talið að af Sveinstindi sjáist um 40% af Íslandi í góðu skyggni. Þarna ber líka á að líta hina ótrúlega miklu náttúruperlu Langasjó, sem er stærsta blátæra fjallavatn landsins, tíunda dýpsta og liggur í djúpum dal á milli Tungárfjalla og Fögrufjalla. Á bakaleiðinni var ekið að Botnlangalóni og um Faxasund. Lesa meira
 
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2004

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður um helgina - 08.08.2008 Ágúst

Hin árlega flugeldasýning að Jökulsárlóni verður haldin annað kvöld þ.e. laugarskvöldið og hefst sýningin á miðnætti. Að sögn Einars Björns Einarssonar staðarhaldara þá verður sýningin í ár með svipuðum hætti og undanfarin ár. Flugeldum er skotið upp af jökum vítt og bereitt um lónið og við það skartar það sínu fegursta. Aðgangseyrir að sýningunni er kr.1000 fyrir fullorðna en frítt fyrir krakka. Allur ágóði af sýningunni rennur óskiptur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Búist er við miklum fjölda gesta á sýninguna og vill Einar Björn beina því til þeirra sem ætla að koma að mæta tímanlega á svæðið því umferð getur orðið þung. Eins vill hann beina því til ökumanna að slökkva bílljósum þegar búið er að leggja bílnum á svæðinu. Lesa meira
 
Ferjun báta

Nýir bátar í heimsókn í höfninni - 05.08.2008 Ágúst

Undanfarna daga hafa tveir norskir smábátar dvalið í höfninni á Hornafriði. Þetta eru Cleopatra fisherman bátar, nýsmíði frá Trefjum í Hafnarfirði. Ástæða þess að þessir tveir bátar eru á Hornafriði er að sigla á þeim til Noregs á næstunni. Bátunum var siglt hingað frá Hafnarfirði og er þetta byrjunarreitur fyrir siglingu til Þrándheims þar sem bátarnir verða til sýnis á sjávarútvegssýningu sem hefst 12 ágúst . Að lokinni sýningu verður þeim siglt til sinnar heimahafnar í norður Noregi nánar tiltekið í Kjöllerfjörd og Vanna. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica