Ríki Vatnajökuls - Júlí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Ungmenni í heimsókn hjá Lionsmönnum
      <description>Sautján ungmenni víðsvegar úr Evrópu hafa verið í hér á landi undanfarið og síðustu dagana  hér á Hornafirði .
Krakkarnir, sem eru á vegum Lions hreyfingarinnar, eru fulltrúar síns lands og þau eru hér til að kynnast nýrri menningu og læra um náttúru og mannlíf  annarra þjóða. Þau eru búin að vera á ferðalagi um Suðurland frá 14.júlí byrjuðu á Hellu og hafa svo fikrað sig í  rólegheitum hér austur eftir og  síðustu dagana verið í umsjá Lionsklúbbs Hornafjarðar en það er síðasti hluti ferðarinnar og þau halda til Reykjavíkur í dag. Að sögn Gunnars Guðmundssonar (hjá Matís) eru krakkarnir afskaplega ánægð með ferðina og hvað margt hefur verið að sjá og allt það sem þau hafa upplifað. Það ótrúlega er að í öllu þessu ferðalagi hefur ekki ein einasta kvörtun heyrst og ekkert óhapp hent sem teljast verður gott í svona stórum hóp í langri ferð.</description>
Hornfirðingar fjölmennum!
      <description>Svo virðist sem margir hugsi sér til hreyfings um verslunarmannahelgina. Það er ekki nokkur vafi að 11. Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið er í Þorlákshöfn er einn af stærstu viðburðum þessarar helgar. Það er ekki nóg með að þarna sé fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna heldur er hún líka ókeypis, það eru einungis keppendur sem greiða þátttökugjald en annað er frítt, s.s. tjaldstæði. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins ulm.is og á síðunni usu.is.</description>
Hómópati og höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari á Höfn
      <description>Árný A. Runólfsdóttir hómópati og Sigurður J. Einarsson höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari verða með móttöku hér á Höfn 24. og 25. júlí í Mánagarði.
Sigurður er mörgum kunnur en hann hefur unnið hér áður. Hann lauk námi frá Nuddskóla Reykjavíkur 1996, námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun 1998, námi í Bowen tækni 2002 og sérnámi í Bowen fyrir íþróttameiðsli í apríl 2005 og 2006.  Hann stundaði svo nám í EFT , Emotional Freedom Technique, frá 2004 til 2006. Þessar meðferðir reynast vel við  bakvandamálum, hálsríg, mislengd á fótleggjum eða gömlum íþróttameiðslum, og hefur einnig reynst vel við mígreni, lesblindu, einbeitingarskorti, sjóntruflunum og depurð. Ýmiskonar verkir og önnur óþægindi, sem hrjá mannfólkið geta orsakast af óhöppum og áföllum sem það verður fyrir í daglegu amstri og flóknu samfélagi nútímans.</description>
Bundið slitlag komið á veginn í Þvottár- og Hvalnesskriðum
      <description>Framkvæmdir við endurlögn á hringvegi 1 um Þvottár-og Hvalnesskriður ganga samkvæmt áætlun og bundið slitlag er komið á veginn í skriðunum. Grjótkassar eru komnir við veginn þar sem mesta grjóthrunið er. Komið er að frágangi vegriðs.  Verktaki er Héraðsverk ehf.og áætlaður verktakakostnaður er 80.527.000 kr. Í tilboðinu segir að verkinu skuli að fullu lokið fyrir 1.sept. Mikil umferð er um hringveginn á þessum tíma og ökumenn fagna því að þurfa ekki að þræða á milli hnullunga sem hrunið hafa úr skriðunum  á veginn.</description>
Siglingastofnun með útibú á Hornafirði
      <description>Í desember sl. lögðu Bæjarstjórn Hornafjarðar og Siglingastofnun fram sameiginlega tillögu til Samgöngumálaráðuneytisins um að Siglingastofnun setji á fót útibú á Höfn í Hornafirði þar sem eftirtöldum verkefnum yrði sinnt: Úttektir vegna hafnarverndar, úttektir vegna slysavarna í höfnum, mælingaverkefni á ýmsum stöðum, bæði dýptarmælingar og landmælingar, ákvörðun á mælum, skipaeftirlit, vinna við líkanatilraunir, önnur verkefni sem til falla og eru falin starfsmönnum útibúsins. Í þessu erindi kom fram að kostnaður vegna þessara verkefna rúmist að stærstum hlut innan fjárheimilda Siglingastofnunar Íslands. Þó þurfi aukafjárveiting vegna stofnkostnaðar og aukins rekstrarkostnaðar en gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður nemi um 2.200.000 mkr. og stofnkostnaður fyrsta árið verði um 3.200.000 mkr.</description>
Óhapp í Hornafjarðarhöfn
      <description>Það óhapp varð í Hornafjarðarhöfn þegar flutningaskipið Green Lofoten var að koma inn á höfnina að það lenti utan í Álftafelli SU sem liggur við Álaugarbryggju og síðan á gamalli trébryggju sem er skammt vestan við Álaugareyjarbryggju. Bryggjan brotnaði og skemmdir urðu á rekverki og  gálga á Álftafellinu. Að sögn Sigfúsar Harðarsonar hafnsögumanns er orsök óhappsins sú að skipið, sem er tæpir 100m á lengd og mjög hátt með tómar lestar, fékk smá vind á sig og það var nóg til að skipið hrakti til hliðar með fyrrgreindum afleiðingum.</description>
      <alt>Óhapp í Hornafjarðarhöfn</alt>
Umferðarkönnun í Berufirði um helgina
      <description>Vegagerðin stóð fyrir umferðarkönnun á gatnamótum Hringvegar og Axarvegar í Berufirði um helgina. Könnunin stóð yfir frá kl. 08:00 ? 23:00 báða dagana. Tilgangur með könnuninni var að kanna áhrif fyrirhugaðs Axarvegar á umferðarvenjur vegfarenda á Austurlandi. Einnig fá upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og svæða, sem síðar nýtast við almenna áætlanagerð. Framkvæmd umferðarkönnunarinnar var með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstaðnum, voru stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.</description>
Sögu-  og upplýsingaskilti sett upp víða í Ríki Vatnajökuls
      <description>Vegagerðin hefur sett upp sögu og upplýsingaskilti á mörgum stöðum í Ríki Vatnajökuls ferðamönnum til fróðleiks og upplýsinga um svæðið. Þetta er liður í átaki sem farið var í fyrir nokkrum árum og þá var hrundið á stað verkefni sem miðaði að því að fjölga áningastöðum  við þjóðveginn í sýslunni allri með því að koma upp fræðsluskiltum og eru þessi skilti afrakstur af þeirri vinnu. Von er á fleiri skiltum t.d. er áætlað að setja upp skilti sem tengjast jöklunum. Söguskiltin sem nú voru sett upp eru við Bæ í Lóni, Þvottá í Álftafirði, Papós í Lóni, Hvamma í Nesjum og Skálafell í Suðursveit.</description>
      <alt>Söguskiltin</alt>
Útiþrekstöðin formlega tekin í notkun
      <description>Útiþrekstöðin á Júllatúni, sem sagt var frá hér á vefnum í sl. viku, var formlega tekin í notkun í dag og er hún opin og  ætluð öllum sem efla vilja hreysti sína og þol. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri umhverfissviðs sagði það von sína og ósk að sem flestir kæmu og nýttu sér aðstöðuna. Þrektækin eru við eina vinsælustu gönguleiðina á svæðinu og því er tilvalið að staldra aðeins við og bregða sér í tækin, sama á hvaða aldri þú ert því þetta er fyrir alla aldurshópa. Jóna og Valdi komu með vaskan hóp Sindrakrakka sem vígðu tækin og kunnu greinilega að meta þau.</description>
Jóhann Bergur Kiesel klúbbmeistari árið 2008
      <description>Meistaramót Golfklúbbs Hornafjarðar fór fram á Silfurnesvelli um síðustu helgi.  Spilaðar voru 36 holur í ágætasta veðri, allavega framan af. Klúbbmeistari árið 2008 er Jóhann Bergur Kiesel og óskum við honum til hamingju með titilinn. Rétt er að taka fram að hann vantar á myndina af því að loknu móti fór hann beinustu leið austur á land til að keppa með fótboltafélaginu Dýnamó.</description>
Hornafjöður hlýtur 25 milljónir í styrk vegna mótvægisaðgerða
      <description>Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 m.kr. til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Þar af hlýtur Hornafjöður 25 milljónir í sem sundurliðast á Samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu og Þekkingarnets Austurlands og Fjarkennslu á B-stigi vélstjórna (FAS). Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni. Við undirbúning styrkveitinga voru símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar á landsbyggðinni skilgreind sem samstarfsaðilar verkefna sem undirbúin voru í samráði við hagsmunaðila á viðkomandi svæði (stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög).</description>
Egill Jónsson - andlátsfrétt
      <description>Egill Jónsson bóndi og fyrrum alþingismaður á Seljavöllum lést laugardaginn 12. júlí sl, 77 ára að aldri. Egill fæddist að Hoffelli í Nesjahreppi 14.desember 1930. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1950 og búfræðikandidatsprófi frá sama skóla 1953. Árið 1955 stofnaði Egill, ásamt eftirlifandi eiginkonu sinni Halldóru Hjaltadóttir, nýbýlið Seljavelli í Nesjum og hófu þau þar búskap.Egill var ráðunautur Búnaðarfélags Íslands 1954-1955 og síðar héraðsráðunautur Búnaðasambands Austur- Skaftfellinga 1956-1980. Hann var fulltrúi á Búnaðarþingi í 41 ár frá 1954-1995, þá sat hann í hreppsnefnd Nesjahrepps í 20 ár 1962-1982.</description>
      <alt>Egill Jónsson</alt>
Ásatrúarmenn blóta í Óslandi
      <description>Laugardaginn 5.júlí héldu Ásatrúarmenn á Hornafirði blót í Óslandi. Mættur var þar Baldur Pálsson Austfjarðargoði í Fellabæ sem helgaði staðinn og lýsti staðarhelgi, mannhelgi, blóthelgi, véböndum, griðum og sáttum. Bauð Baldur gesti velkomna og sagði það sérstaklega ánægjulegt að sjá svona stóran hóp mættan á staðinn bæði ásatrúarmenn og þá sem áhuga hefðu á að fylgjast með og taka þátt í blótinu. Síðan las hann úr Hávamálum  og blóthornið látið  ganga hringinn og drukku þeir blótgestir sem vildu heill þess goðs sem hver og einn kýs. Sá er heldur á horninu hverju sinni hefur orðið og getur drukkið heill síns goðs eða gyðju, vana, vætta, máttugra vera, forfeðra, framliðinna eða þeirra sem menn telja að hafi til þess unnið.</description>
Styrktu RKÍ með sölu mynda og blævængja sem þau gerðu sjálf
      <description>Nokkrir duglegir og kátir krakkar þau Brynjar Daði, Dagur Freyr, Hafþór Logi og Hafdís Ýr söfnuðu 2.772 krónum með sölu mynda og blævængja sem þau gerðu sjálf. Þau afhentu Ásgerði Gylfadóttur gjaldkera Hornafjarðardeildar RKÍ afraksturinn og þakkaði hún krökkunum fyrir þessa góðu gjöf. Ásgerður segir að upphæðin muni renna til hjálparsjóðs RKÍ og koma þar að góðum notum. Hún sagði við fréttamann vefsins að vert að minna á að alltaf er tekið við fötum í fatasöfnun RKÍ sem er í gámaportinu við Áhaldahúsið á opnunartíma þess.</description>
Nýtt gjallarhorn prófað í Jónsmessuferðinni
      <description>Ferðafélagið fór í sína árlegu  óvissuferð um Jónsmessuna. Nú fórum við út í Skógey og skoðuðum okkur þar um undir leiðsögn Þrúðmars Sigurðssonar frá Miðfelli. Fræddi  hann okkur um þá miklu  landgræðslu sem þar hefur átt sér stað  á undanförnum árum  og er frábært að sjá hvernig landið hefur breyst úr sandauðn í grasivaxið landsvæði , hvert sem litið er. Á leiðinni hittum við fjölskyldu sem var þar í útreiðartúr og voru þau svo yndisleg að lofa yngstu ferðalöngunum að fara á hestbak, svo sáum við hrafnslaup en ekki hafði krummi þá verpt þar í vor. Þegar búið var að labba um svæðið dágóðastund, var áð og bauð ferðafélagið upp á kakó og kleinur sem voru gerð góð skil undir ljúfum tónum úr harmonikkunni hans Zophoníusar Torfasonar.</description>
Logi Bergmann stóð fyrir forvitnilegri fjáröflun.
      <description>Logi Bergmann Eiðsson, Þorsteinn Hallgrímsson, Eyjólfur Kristjánsson og Ragnhildur Sigurðardóttir spiluðu golf vítt og breitt um landið á einum sólarhring, nánar tiltekið á 18 fallegustu golfvöllum landsins.
Þau létu þó nægja að leika eina holu á hverjum velli og  voru því í kapphlaupi við tímann því spilað var á Ísafirði, Egilsstöðum, Höfn og í Vestmannaeyjum svo dæmi séu tekin. Ferðin var farin til að safna áheitum fyrir félag MND-sjúklinga á Íslandi. Hópurinn gerði stutt stopp á Humarhöfninni til að næra sig eftir að hafa spilað á Silfurnesvelli.</description>
Nýtt vallarmet hjá golfkennaranum
      <description>Humarhátiðarmótið í golfi fór fram laugardaginn 4.júlí í við fínar aðstæður um 40 kylfingar spreyttu sig í logni góðum hita og skýjuðu veðri sem  er vinsælt meðal kylfinga. Völlurinn var  nokkuð blautur eftir rigningar fyrri daga  og hvort það var það, glaumur á humarháðið eða bara erfiður völlur þá voru ekki margir sem náðu góðu skori. Upp úr stóð þó frammistaða golfkennarans Sturlu Höskuldssonar sem kom inn á nýju vallarmeti 74 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins. Einnig vann hann punktakeppnina og átti lengsta teighöggið. Sannarlega góður árangur hjá Sturlu sem hefur verið að miðla af þekkingu sinni til okkar Hornfirðinga í sumar. Verðlaun voru í boði Skinneyjar Þinganess sem gaf humar og  Nettó sem gaf golfkerrur og kúlur.</description>
Peningalyktin verður ekki um helgina
      <description>Eins og allir hafa orðið varir við er bræðslan komin í gang, og loksins segja margir! En stundum vill fylgja starfseminni lykt sem mörgum finnst óþægileg en flestir þekkja sem peningalykt -  og ekki að ósekju. Vefurinn hafði samband við Ingva Sigurðsson framkvæmdastjóra fiskimjölsverksmiðjunnar og  sagði hann að ekki yrði brætt neitt yfir helgina. Við ætlum ekki að angra nábúa okkar og aðra sem hér eru með peningalyktinni meðan humarhátíðin stendur yfir. Ingvi segir að Fiskimjölsverksmiðjan sé búin öllum þeim búnaði sem krafist er í svona verksmiðju en það sé bara ekki hægt að losna algjörlega við lyktina frá bræðslunni en við ætlum að gera enn betur og endurbæta þennan búnað og erum með mann í vinnu til að finna út hvað er árangursríkast og best.</description>
Breiðarmerkurlón mælist 208 metra djúpt
      <description>Dýptarmælingar fór fram á Jökulsárlóni um síðustu helgi og þar kemur fram að Jökulsárlón er 208 metra djúpt þar sem dýpst er fyrir framan jökulröndina við Breiðamerkurjökul. Árið 2001 þegar sambærilegar mælingar fóru fram á lóninu mældist dýpið 197 metrar fyrir framan jökulröndina þar sem hún var þá en síðan hefur jökullinn hopað um hundruði metra. Almennt þegar verið er að kynna Jökulsárlónið er talað um að það sé 200 metrar þar sem það er dýpst. Talið er að jökullinn sem er í lóninu sé um 1000-1500 ára gamall.</description>
      <alt>Jökulsárlón</alt>
Gríptu með þér hornfirska sælkerahumarsúpu
      <description>Hvar annars staðar en á Hornafirði getur þú keypt sælkerahumarsúpu úr staðbundnu (local) hráefni beint í bílinn?  Skyndibitastaðurinn Kokkur á Höfn í Hornafirði hefur hafið sölu á humarsúpu í gegnum bílalúgu.  Um er að ræða sælkerahumarsúpu sem unnin er úr staðbundnu hráefni. Súpuna færðu beint í bílinn, rútuna eða lautarferðina. Það er óneitanlega sérstök og sterk upplifun að kaupa jafn glæsilega vöru og sælkerahumarsúpu í bílalúgu á skyndibitastað. Til að auka enn á hughrifin er súpan framreidd í fallegum endurvinnanlegum umbúðum og með henni fylgir servíetta sem vísar til hins eina sanna rauðköflótta lautarferðadúks. Tréspjót með nýgrilluðum humri fylgir með súpunni. Að sögn Jóns Sölva eins eiganda Kokksins þá er aðeins úrvalshráefni í súpunni og segir hann að  vörumerki Humarsúpunnar er skjaldarmerki, sem vísar til gæða vörunnar og þess að hún er frá höfuðstað humarsins á Íslandi.  Í súpunni er eingöngu úrvalshráefni en undirstaðan er auðvitað hornfirskur humar.  
|nl|</description>
Enginn barlómur í bændum hér í sveit
      <description>Miklar ræktunarframkvæmdir eru í Sveitarfélaginu Hornafirði og hugur í bændum að bæta við túnin og hreinsa uppúr skurðum á ræktunarlöndum, en það þarf að gera á nokkurra ára fresti. Þeir sem leið eiga á Hornafjarðarflugvöll sjá stóran og mikinn fráveituskurð sem Pétur Haukur Jónsson hefur verið að grafa fyrir túnrækt.  Það er enginn barlómur í bændum hér þó móti blási í efnahagsmálum þjóðarinnar og miklar hækkanir á áburði og olíu segir Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambandsins, og menn eru ekkert á því að draga saman heldur hafa bú hér stækkað. Stærsta viðbótin í kúabúskapnum er nýja kúabúið í Flatey með á annað hundrað kýr og þar eru miklar ræktunarframkvæmdir í gangi.</description>
      <alt>Pétur Haukur</alt>
Kraft-hópurinn kom til Hornafjarðar
      <description>Kraftur í kringum Ísland er framtak 9 manna hóps frá Vestmannaeyjum sem siglir í kringum Ísland á tveimur slöngubátum. Hópurinn kom til Hornafjarðar  um miðjan dag á mánudag.  Tilgangurinn með þessari ferð er  að vekja athygli á og til að styrkja Kraft sem er stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þess. Lagt var af stað frá Vestmannaeyjum þann 14. júní og siglt til Reykjavíkur og svo haldið frá Reykjavík 17. júní og er ætlunin að enda ferðina í Vestmannaeyjum 4. júlí á goslokahátíðinni.</description>
      <alt>Krafthópurinn</alt>
Drekinn kemur ferðafólki til hjálpar
      <description>Kolvitlaust veður er í Öræfasveit og hefur vindur farið í 50m þegar verst lét. Ólafur Sigurðsson  í Svínafelli var núna um kvöldmatarleitið að bjarga tveim ferðamönnum  frá Slóveníu sem voru á mótorhjóli á leið í Hof en fuku útaf veginum. Sem oft áður kom drekinn að góðum notum þegar ekki er fært öðrum farartækjum og fór Ólafur á honum sótti fólkið og fór með það að Hofi þar sem það átti pantaða gistingu.Engin meiðsli urðu á fólkinu. Tjaldvagn er á hvolfi utan vegar skammt frá Hofi og sagði  Ólafur að einhverjar skemmdir væru á vagninum.</description>
Nýr rekstrarstjóri tekinn við í Húsasmiðjunni á Höfn
      <description>Frá og með deginum í dag hefur Kristján V. Björgvinsson tekið við sem rekstrarstjóri í Húsasmiðjunni á Höfn. Hann tekur við starfinu af Gunnari Hermanssyni sem hefur gengt því frá því að Húsasmiðjan opnaði á Höfn, Gunnar heldur áfram sem starfsmaður Húsasmiðjunnar en hann segir að það sé kominn tími á að minnka vinnuna sökum aldurs og því geti hann gefið sér betri tíma til að sinn áhugamálum. Kristján V. Björgvinsson eða Venni eins og flestir þekkja hann er frá Grenivík/Seltjarnarnesi og hefur hann búið hér á Höfn síðustu 6 árin, sambýliskona Venna er Kristín Jónsdóttir starfsmaður hjá Sýslumanninum á Höfn. Venni segist hlakka til að takast á við þetta nýja og skemmtilega starf.</description>