Ungmenni í heimsókn hjá Lionsmönnum
Sautján ungmenni víðsvegar úr Evrópu hafa verið í hér á landi undanfarið og síðustu dagana hér á Hornafirði .
Krakkarnir, sem eru á vegum Lions hreyfingarinnar, eru fulltrúar síns lands og þau eru hér til að kynnast nýrri menningu og læra um náttúru og mannlíf annarra þjóða. Þau eru búin að vera á ferðalagi um Suðurland frá 14.júlí byrjuðu á Hellu og hafa svo fikrað sig í rólegheitum hér austur eftir og síðustu dagana verið í umsjá Lionsklúbbs Hornafjarðar en það er síðasti hluti ferðarinnar og þau halda til Reykjavíkur í dag. Að sögn Gunnars Guðmundssonar (hjá Matís) eru krakkarnir afskaplega ánægð með ferðina og hvað margt hefur verið að sjá og allt það sem þau hafa upplifað. Það ótrúlega er að í öllu þessu ferðalagi hefur ekki ein einasta kvörtun heyrst og ekkert óhapp hent sem teljast verður gott í svona stórum hóp í langri ferð.
Í gærkvöldi buðu Lionsmenn krökkunum í mat í Nýheimum og var humar í matinn, trúlega nokkuð sem þau hafa ekki verið vön og sumir fóru svolítið varlega þegar verið var að fá sér af fatinu en öllu var gerð góð skil og auðséð var að þeir Lionsmenn sem þarna voru nutu vel félagsskapar þessara hressu krakka. Krakkarnir hafa haldið út dagbók á netinu þar sem þau segja ferðasöguna úr þessari ævintýraferð sinni og er slóðin southcoast2008.com.




Skrifa athugasemd