Hómópati og höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari á Höfn
Árný A. Runólfsdóttir hómópati og Sigurður J. Einarsson höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari verða með móttöku hér á Höfn 24. og 25. júlí í Mánagarði.
Sigurður er mörgum kunnur en hann hefur unnið hér áður. Hann lauk námi frá Nuddskóla Reykjavíkur 1996, námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun 1998, námi í Bowen tækni 2002 og sérnámi í Bowen fyrir íþróttameiðsli í apríl 2005 og 2006. Hann stundaði svo nám í EFT , Emotional Freedom Technique, frá 2004 til 2006.
Þessar meðferðir reynast vel við bakvandamálum, hálsríg, mislengd á fótleggjum eða gömlum íþróttameiðslum, og hefur einnig reynst vel við mígreni, lesblindu, einbeitingarskorti, sjóntruflunum og depurð. Ýmiskonar verkir og önnur óþægindi, sem hrjá mannfólkið geta orsakast af óhöppum og áföllum sem það verður fyrir í daglegu amstri og flóknu samfélagi nútímans.
Slys eða áföll, líkamleg sem andleg, eru oft ótrúlega nátengd og birtast þannig á ýmsan hátt. Þær aðferðir sem Sigurður notar eru mjúkar en skilvirkar og eiga sér langa þróunarsögu. Hann hefur sérhæft sig í bakvandamálum og svo áföllum en EFT meðferðin er sérstaklega hönnuð sem meðferð við afleiðingum áfalla.
Árný hefur starfað sem ráðgjafi í heilsuverslunum í 12 ár, bæði á Akureyri og í Reykjavík.Hún lauk námi í Norræna Heilunarskólanum árið 1985, tók Reiki 1. og 2. stig árið 1990, jógakennaranámi frá Kripalu Center for Yoga and Health, árið 1994, lauk hómópatanámi LCPH frá The College of Practical Homoeopathy í London árið 2007, tók áfanganám í Level I Diagnostic Kinesiology, 2001 og Diagnostic Kinesioligy frá Newlands Park Natural Health Center í London árið 2007.
Árný er félagi í Organon, samtökum Hómópata á Íslandi og í BIG, Bandalagi Íslenskra Græðara.
Meðferð hjá hómópata grundvallast á viðtölum þar sem leitast er við að fá sem skýrasta mynd af einstaklingnum frá sem flestum sjónarhornum. Lengd meðferðar er breytileg eftir einstaklingum. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því lengri tíma megi búast við að meðferðin taki. Þar sem hómópatían vinnur vel með bæði öðrum heildrænum meðferðum og hefðbundnum læknismeðferðum, er hún góð leið fyrir einstaklinga sem vilja taka meiri ábyrð á eigin heilsu og líðan.
Hómópatía er aldagömul aðferð sem byggir á reglunni að ,,líkt læknar líkt? og meðferðaraðilar nota svokallaðar remedíur eða ,,smáskammta? af efnum sem unnin eru úr jurta-, dýra-, steinaríkinu og fleiru. Efnin eru þynnt út, svo mikið að þau virka fremur sem hvatar eða skilaboð heldur en að hafa beina efnavirkni og eru þannig með öllu skaðlaus og hafa engar aukaverkanir. Hinsvegar felst virknin í því að virkja lífsorkuna og hæfnina einstaklingsins til að viðhalda góðri heilsu. Remediur trufla ekki lyfjagjöf eða aðra læknismeðferð.
Árný beitir einnig Kinesiology eða vöðvaprófun. Þessa aðferð er notuð til að kanna rafmagns- og/eða mataróþol og vítamín þörf. Hagnýt Kinesiology var fyrst nýtt sem meðferðarform árið 1964 en fræðin eru að mestu forn að uppruna.
Fræðin byggjast á hreyfingu og viðbrögðum vöðva og liðamóta, og notar vöðvastyrk/rafleiðni, til að mæla ástand líkamans og viðbrögð hans. Meðferðarformið er bank á nálastungupunkta.
Tímapantanir eru í símum: 898 0472 (Árný arnyr@simnet.is )og
891 6892 (Sigurður cranio@simnet.is, www.leit.is/servefir/siggieinars)





Skrifa athugasemd