Bundið slitlag komið á veginn í Þvottár- og Hvalnesskriðum
Framkvæmdir við endurlögn á hringvegi 1 um Þvottár-og Hvalnesskriður ganga samkvæmt áætlun og bundið slitlag er komið á veginn í skriðunum. Grjótkassar eru komnir við veginn þar sem mesta grjóthrunið er. Komið er að frágangi vegriðs. Verktaki er Héraðsverk ehf.og áætlaður verktakakostnaður er 80.527.000 kr. Í tilboðinu segir að verkinu skuli að fullu lokið fyrir 1.sept. Mikil umferð er um hringveginn á þessum tíma og ökumenn fagna því að þurfa ekki að þræða á milli hnullunga sem hrunið hafa úr skriðunum á veginn. Starfsmenn vegagerðarinnar munu eftir sem áður fylgjast vel með hruni úr skriðunum eins og þeir hafa gert gegnum árin og sjá um að halda færum þessum erfiða vegarkafla en þeir hafa ótal oft aðstoðað vegfarendur þar.





Skrifa athugasemd