Siglingastofnun með útibú á Hornafirði
Í desember sl. lögðu Bæjarstjórn Hornafjarðar og Siglingastofnun fram sameiginlega tillögu til Samgöngumálaráðuneytisins um að Siglingastofnun setji á fót útibú á Höfn í Hornafirði þar sem eftirtöldum verkefnum yrði sinnt: Úttektir vegna hafnarverndar, úttektir vegna slysavarna í höfnum, mælingaverkefni á ýmsum stöðum, bæði dýptarmælingar og landmælingar, ákvörðun á mælum, skipaeftirlit, vinna við líkanatilraunir, önnur verkefni sem til falla og eru falin starfsmönnum útibúsins. Í þessu erindi kom fram að kostnaður vegna þessara verkefna rúmist að stærstum hlut innan fjárheimilda Siglingastofnunar Íslands. Þó þurfi aukafjárveiting vegna stofnkostnaðar og aukins rekstrarkostnaðar en gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður nemi um 2.200.000 mkr. og stofnkostnaður fyrsta árið verði um 3.200.000 mkr.
Svar hefur nú borist frá Samgöngumálaráðuneytinu undirskrifað af Kristjáni Möller samgöngumálaráðherra þar sem segir: Það er mat ráðuneytisins að ýmis verkefni sem Siglingastofnun Íslands hefur með höndum séu þess eðlis að hægt sé að vinna þau á landsbyggðinni. Að ráðuneytisins er það einkum bættum samgöngum og aukinni fjarskiptatækni að þakka. Það er markmið ráðuneytisins að fjölga störfum á landsbyggðinni þegar því verður við komið. Í ljósi þess, auk þess sem það er mat ráðuneytisins að margvíslegum verkefnum Siglingastofnunar Íslands sé hægt að sinna án tillits til staðsetningar, telur ráðuneytið að það sé vel til þess fundið að koma á fót útibúi stofnunarinnar á Höfn í Hornafirði, enda fáist fjárveiting vegna stofnkostnaðar og aukins rekstrarkostnaðar.
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri fagnar þessu svari samgöngumálaráðherra og segir ,,við fögnum þessu sérstaklega og ég tel að þessi afgreiðsla samgönguráðs sé algjörlega til fyrirmyndar.Við væntum meira af slíku frá ríkisstjórninni í framtíðinni ekki bara á Hornafirði heldur á landsbyggðinni í heild. Þetta er náttúrulega hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar að fjölga störfum án staðsetningar úti á landi´´.
Hjalti reiknar með, að komi þessi framkvæmd inn á endurskoðuð fjárlög þá gerist þetta í haust annars á fjárlögum 2009 og hefjist í byrjun árs 2009.
Hér er um eitt starf að ræða hjá Siglingastofnun sem vonandi vindur upp á sig með tíð og tíma og að það verði fleiri störf sem sannarlega er hægt að vinna annarsstaðar en í Reykjavík og verði hægt að færa þau í þessa starfsstöð.
Vignir Júlíusson hafnsögumaður og starfsmaður hjá Hornafjarðarhöfn sem undanfarið hefur unnið hjá Siglingastofnun hefur hætt störfum hjá höfninni og er nú ráðinn deildarstjóri í Líkana-og mælingadeild Siglingastofnunar. Það kemur því í hlut Vignis að flytja sín störf hjá Siglingastofnun hingað heim. Vignir segir að sér lítist ágætlega á þetta allt, sín deild flytjist með sér hingað heim að undanskyldri Líkanadeildinni sem verður að vera í Reykjavík. Aðspurður um hvort ekki væru líkur á fleiri störfum hér þegar fram líða stundir sagði hann "Við byrjum með þetta og sjáum svo hvað upp úr hattinum kemur".





Skrifa athugasemd