Óhapp í Hornafjarðarhöfn
Það óhapp varð í Hornafjarðarhöfn þegar flutningaskipið Green Lofoten var að koma inn á höfnina að það lenti utan í Álftafelli SU sem liggur við Álaugarbryggju og síðan á gamalli trébryggju sem er skammt vestan við Álaugareyjarbryggju. Bryggjan brotnaði og skemmdir urðu á rekverki og gálga á Álftafellinu. Að sögn Sigfúsar Harðarsonar hafnsögumanns er orsök óhappsins sú að skipið, sem er tæpir 100m á lengd og mjög hátt með tómar lestar, fékk smá vind á sig og það var nóg til að skipið hrakti til hliðar með fyrrgreindum afleiðingum. Skipið skemmdist ekki utan smá rispu sem auðveldlega má laga með málningu og pensli. Skipið lestar frystivörur hjá Skinney Þinganesi og fer frá Höfn á fimmtudaginn.





Skrifa athugasemd