Sögu- og upplýsingaskilti sett upp víða í Ríki Vatnajökuls
Vegagerðin hefur sett upp sögu og upplýsingaskilti á mörgum stöðum í Ríki Vatnajökuls ferðamönnum til fróðleiks og upplýsinga um svæðið. Þetta er liður í átaki sem farið var í fyrir nokkrum árum og þá var hrundið á stað verkefni sem miðaði að því að fjölga áningastöðum við þjóðveginn í sýslunni allri með því að koma upp fræðsluskiltum og eru þessi skilti afrakstur af þeirri vinnu. Von er á fleiri skiltum t.d. er áætlað að setja upp skilti sem tengjast jöklunum. Söguskiltin sem nú voru sett upp eru við Bæ í Lóni, Þvottá í Álftafirði, Papós í Lóni, Hvamma í Nesjum og Skálafell í Suðursveit.
Að gerð þessara skilta komu Gísli Sverrir Árnason sem sá um skiltin við Bæ í Lóni og Þvottá í Álftafirði, Sigurlaug Gissurardóttir f.h. Ferðamálafélagsins og Menningarmiðstöð Hornafjarðar (Sigurður Hannesson) sem sáu um skiltin við Papós í Lóni, Hvamma í Nesjum og Skálafell í Suðursveit. Vegagerðin kostaði alla hönnun og framleiðslu á skiltunum og sá um uppsetningu á þeim.





Skrifa athugasemd