Útiþrekstöðin formlega tekin í notkun
Útiþrekstöðin á Júllatúni, sem sagt var frá hér á vefnum í sl. viku, var formlega tekin í notkun í dag og er hún opin og ætluð öllum sem efla vilja hreysti sína og þol. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri umhverfissviðs sagði það von sína og ósk að sem flestir kæmu og nýttu sér aðstöðuna. Þrektækin eru við eina vinsælustu gönguleiðina á svæðinu og því er tilvalið að staldra aðeins við og bregða sér í tækin, sama á hvaða aldri þú ert því þetta er fyrir alla aldurshópa. Jóna og Valdi komu með vaskan hóp Sindrakrakka sem vígðu tækin og kunnu greinilega að meta þau.
Bæjarbúar, látum sjá að gott framtak sé metið og notum þessi tæki ? það er bara að byrja.





Skrifa athugasemd