Júlí
Golf_Meistaramot2008
Golf_Meistaramot2008
Verðlaunahafar á meistaramóti Golfklúbbs Hornafjarðar 2008 á myndina vantar Jóhann Berg

16.07.2008 Júlí

Jóhann Bergur Kiesel klúbbmeistari árið 2008

Meistaramót Golfklúbbs Hornafjarðar fór fram á Silfurnesvelli um síðustu helgi. Spilaðar voru 36 holur í ágætasta veðri, allavega framan af. Klúbbmeistari árið 2008 er Jóhann Bergur Kiesel og óskum við honum til hamingju með titilinn. Rétt er að taka fram að hann vantar á myndina af því að loknu móti fór hann beinustu leið austur á land til að keppa með fótboltafélaginu Dýnamó. Á myndinni eru aðrir verðlaunahafar, nánari úrslit er hægt að sjá á www.golf.is Næsta laugardag verður Sparisjóðsmótið haldið og hefst kl. 09:00. Veðurspáin er góð og það verða verðlaunin einnig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica