Hornafjöður hlýtur 25 milljónir í styrk vegna mótvægisaðgerða
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 m.kr. til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Þar af hlýtur Hornafjöður 25 milljónir í sem sundurliðast á Samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu og Þekkingarnets Austurlands og Fjarkennslu á B-stigi vélstjórna (FAS). Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni. Við undirbúning styrkveitinga voru símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar á landsbyggðinni skilgreind sem samstarfsaðilar verkefna sem undirbúin voru í samráði við hagsmunaðila á viðkomandi svæði (stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög).
Áhersla var lögð á að styrkja menntunarverkefni sem væru til þess fallin að mæta afleiðingum samdráttar í fiskveiðum og fiskvinnslu.
Menntamálaráðuneyti hafði samráð við iðnaðarráðuneyti sem gekkst fyrir greiningu Byggðastofnunar á afleiðingum aflasamdráttar eftir sveitarfélögum um land allt. Jafnframt var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á þróunarverkefni til lengri tíma í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Styrkveitingar eru að hluta til háðar framvindu verkefna og þátttöku í þeim. Jafnframt mun menntamálaráðuneyti fylgjast með framkvæmd verkefna, meta möguleika á yfirfærslu vel heppnaðra aðgerða og stuðla að samstarfi milli landshluta.





Skrifa athugasemd