Júlí
Egill Jónsson
Egill Jónsson
Egill Jónsson
Mynd 1 af 2
1 2

15.07.2008 Júlí

Egill Jónsson - andlátsfrétt

Egill Jónsson bóndi og fyrrum alþingismaður á Seljavöllum lést laugardaginn 12. júlí sl, 77 ára að aldri. Egill fæddist að Hoffelli í Nesjahreppi 14.desember 1930. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1950 og búfræðikandidatsprófi frá sama skóla 1953. Árið 1955 stofnaði Egill, ásamt eftirlifandi eiginkonu sinni Halldóru Hjaltadóttir, nýbýlið Seljavelli í Nesjum og hófu þau þar búskap.Egill var ráðunautur Búnaðarfélags Íslands 1954-1955 og síðar héraðsráðunautur Búnaðasambands Austur- Skaftfellinga 1956-1980. Hann var fulltrúi á Búnaðarþingi í 41 ár frá 1954-1995, þá sat hann í hreppsnefnd Nesjahrepps í 20 ár 1962-1982.

Árið 1979 var Egill kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Austurlandskjördæmi, hann sat á þingi til ársins 1999 er hann lét af þingmennsku. Á Alþingi vann hann m.a ötullega að byggðamálum, málefnum landbúnaðarins og landgræðslu. Á Alþingi sat hann m.a í fjárlaga og landbúnaðarnefnd og var formaður hennar um tíma. Egill gengdi fjölmörgum trúnaðarstörfum, má þar nefna: skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri, stjórn Áburðarverksmiðjunnar, stjórn Búnaðarfélags Íslands, stjórn Framleiðnisjóðs Landbúnaðarins, stjórn Byggðastofnunnar þar sem hann var einnig formaður í 4 ár og formaður fagráðs í Landgræðslu Íslands.
Auk þess kom Egill að útgáfu málum og ritstörfum, hann sá ásamt fleirum um útgáfu bókanna Jódynur - hestar og mannlíf í Austur- Skaftafellssýslu og Jöklaveröld- Náttúra og mannlíf.
Egill verður jarðsunginn frá Bjarnaneskirkju föstudaginn 18. júlí og hefst athöfnin kl 14.00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica