Ásatrúarmenn blóta í Óslandi
Laugardaginn 5.júlí héldu Ásatrúarmenn á Hornafirði blót í Óslandi. Mættur var þar Baldur Pálsson Austfjarðargoði í Fellabæ sem helgaði staðinn og lýsti staðarhelgi, mannhelgi, blóthelgi, véböndum, griðum og sáttum. Bauð Baldur gesti velkomna og sagði það sérstaklega ánægjulegt að sjá svona stóran hóp mættan á staðinn bæði ásatrúarmenn og þá sem áhuga hefðu á að fylgjast með og taka þátt í blótinu. Síðan las hann úr Hávamálum og blóthornið látið ganga hringinn og drukku þeir blótgestir sem vildu heill þess goðs sem hver og einn kýs.
Sá er heldur á horninu hverju sinni hefur orðið og getur drukkið heill síns goðs eða gyðju, vana, vætta, máttugra vera, forfeðra, framliðinna eða þeirra sem menn telja að hafi til þess unnið.
Ásatrú eða heiðinn siður byggir á umburðarlyndi, heiðarleika, drengskap og virðingu fyrir náttúrunni og öllu lífi. Eitt megininntak siðarins er að hver maður sé ábyrgur fyrir sjálfum sér og gerðum sínum.
Ì Hávamálum er einkum að finna siðareglur Ásatrúarmanna. Heimsmynd ásatrúarmanna er að finna í Völuspá. Þar er sköpunarsögunni lýst, þróun heimsins, endalokum hans og nýju upphafi.
Ì trúarlegum efnum hafa ásatrúarmenn aðallega hliðsjón af hinum fornu Eddum.
Margir ásatrúarmenn líta frekar á ásatrú sem sið eða lífsstíl heldur en bein trúarbrögð
Að kalla siðinn ásatrú er reyndar villandi þar sem átrúnaður er ekki einungis bundinn við æsi, heldur hvaða goð eða vættir sem er innan norrænnar goðafræði og þjóðtrúar, svo sem landvættir, álfa, dísir, vani, jötna, dverga og aðrar máttugar verur eða forfeður. Ásatrúarmenn iðka trú sína á hvern þann hátt sem hverjum og einum hentar svo framalega sem iðkunin brýtur ekki á bága við landslög.
Þeim sem vilja frekari vitneskju um starfsemi ásatrúarmanna er bent á vef Ásatrúarfélagsins.





Skrifa athugasemd