Styrktu RKÍ með sölu mynda og blævængja sem þau gerðu sjálf
Nokkrir duglegir og kátir krakkar þau Brynjar Daði, Dagur Freyr, Hafþór Logi og Hafdís Ýr söfnuðu 2.772 krónum með sölu mynda og blævængja sem þau gerðu sjálf. Þau afhentu Ásgerði Gylfadóttur gjaldkera Hornafjarðardeildar RKÍ afraksturinn og þakkaði hún krökkunum fyrir þessa góðu gjöf. Ásgerður segir að upphæðin muni renna til hjálparsjóðs RKÍ og koma þar að góðum notum. Hún sagði við fréttamann vefsins að vert að minna á að alltaf er tekið við fötum í fatasöfnun RKÍ sem er í gámaportinu við Áhaldahúsið á opnunartíma þess.
Mikilvægt er að fötin séu heil og að sjálfsögðu hrein. Þau geru síðan send flokkunarstöð sem er í Reykjavík og þaðan til bágstaddra eða seld þar sem andvirðið rennur til hjálparstarfs.





Skrifa athugasemd