Nýtt gjallarhorn prófað í Jónsmessuferðinni
Ferðafélagið fór í sína árlegu óvissuferð um Jónsmessuna. Nú fórum við út í Skógey og skoðuðum okkur þar um undir leiðsögn Þrúðmars Sigurðssonar frá Miðfelli. Fræddi hann okkur um þá miklu landgræðslu sem þar hefur átt sér stað á undanförnum árum og er frábært að sjá hvernig landið hefur breyst úr sandauðn í grasivaxið landsvæði , hvert sem litið er. Á leiðinni hittum við fjölskyldu sem var þar í útreiðartúr og voru þau svo yndisleg að lofa yngstu ferðalöngunum að fara á hestbak, svo sáum við hrafnslaup en ekki hafði krummi þá verpt þar í vor. Þegar búið var að labba um svæðið dágóðastund, var áð og bauð ferðafélagið upp á kakó og kleinur sem voru gerð góð skil undir ljúfum tónum úr harmonikkunni hans Zophoníusar Torfasonar.
Gönguhópnum var síðan skipt upp í lið og fékk hver hópur fimm gátur í vísnaformi, sem þau átti að ráða og skila til nefndarinnar og fyrir rétt svör voru veitt bókaverðlaun. Þess má geta að Ferðafélagið hefur fest kaup á fyrirtaks gjallarhorni sem var prufað í þessari ferð og reyndist mjög vel. Vonum við að hér eftir geti fleiri notið þess að heyra betur í okkur og leiðsögufólkinu okkar í ferðum félagsins. Viljum við svo að endingu minna á, að það styttist í hina árlegu jeppa og gönguferð okkar og nú á að fara í Hólaskjól - Eldgjá - Langasjó - Sveinstind -Álftavatnakróka , helgina 18.-20. júlí. Ferðin verður auglýst nánar á Skjávarpi.
- Ferðanefnd Ferðafélags A- Skaft.
Hér í lokin eru svo vísnagáturnar ef þið lesendur góðir viljið spreyta ykkur á þeim . Svörin eru öll í sjónmáli frá Skógey.
Fjögur sker og eyjar tvær
á svæðinu nöfn hér bera.
Ef nöfnin þú þekkir kappinn kær
ég kláran tel þig vera.
- m.p
Margan hefur sagan sent
sjóðinn til að taka.
Það skal aðeins á það bent
að ei má gá til baka.
- m.p
Þar var eitt sinn Bjargar bú
hún lengi þar átti velli.
Bakkabræður þar búa nú
og rusli var eitt í helli.
- m.p
Þar oft má finna veiði von
á verurnar ís á leggur.
Nú það byggir Halldórsson
og á syndir andasteggur.
- m.p.
Hver er sá veggur víður og hár,
veglega settur röndum,
gulur, rauður, grænn og blár,
gerður af meistara höndum.
- m.p.





Skrifa athugasemd