Júlí
18 holur á átján tímum
Humarhofnin_271
18 holur á átján tímum
Mynd 1 af 2
1 2

07.07.2008 Júlí

Logi Bergmann stóð fyrir forvitnilegri fjáröflun.

Logi Bergmann Eiðsson, Þorsteinn Hallgrímsson, Eyjólfur Kristjánsson og Ragnhildur Sigurðardóttir spiluðu golf vítt og breitt um landið á einum sólarhring, nánar tiltekið á 18 fallegustu golfvöllum landsins.
Þau létu þó nægja að leika eina holu á hverjum velli og voru því í kapphlaupi við tímann því spilað var á Ísafirði, Egilsstöðum, Höfn og í Vestmannaeyjum svo dæmi séu tekin. Ferðin var farin til að safna áheitum fyrir félag MND-sjúklinga á Íslandi. Hópurinn gerði stutt stopp á Humarhöfninni til að næra sig eftir að hafa spilað á Silfurnesvelli.


Stöð2 sport mun sýna 2 þætti um þetta ævintýralega golfferðalag einhverntímann á næstunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica