Nýtt vallarmet hjá golfkennaranum
Humarhátiðarmótið í golfi fór fram laugardaginn 4.júlí í við fínar aðstæður um 40 kylfingar spreyttu sig í logni góðum hita og skýjuðu veðri sem er vinsælt meðal kylfinga. Völlurinn var nokkuð blautur eftir rigningar fyrri daga og hvort það var það, glaumur á humarháðið eða bara erfiður völlur þá voru ekki margir sem náðu góðu skori. Upp úr stóð þó frammistaða golfkennarans Sturlu Höskuldssonar sem kom inn á nýju vallarmeti 74 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins. Einnig vann hann punktakeppnina og átti lengsta teighöggið. Sannarlega góður árangur hjá Sturlu sem hefur verið að miðla af þekkingu sinni til okkar Hornfirðinga í sumar. Verðlaun voru í boði Skinneyjar Þinganess sem gaf humar og Nettó sem gaf golfkerrur og kúlur.
Annars voru úrslit eftirfarandi:
Höggleikur karlar
1. Sturla Höskuldsson GFH 74 högg
2. Kjartan D.Kjartansson GKG 81 högg
3. Bjarni G. Jónsson GO 86 högg
Punktakeppni karlar
1. Sturla Höskuldsson GFH 35 punktar
2. Haraldur Jónsson GHH 34 punktar
3. Þórður Jónsson GR 32 punktar
Höggleikur konur
1. Laufey V. Oddsdóttir GE 88.högg
2. Þuríður Ingólfsdóttir GFH 105 högg
3. Arnheiður Jónsdóttir GOS 107 högg
Punktakeppni konur
1. Laufey V. Oddsdóttir GE 34 punktar
2. Þuríður Ingólfsdóttir GFH 30 punktar
3. Arnheiður Jónsdóttir GOS 27 punktar
Mótanefndin





Skrifa athugasemd