Júlí
Breiðarmerkurlón mælist 208 metra djúpt
Dýptarmælingar fór fram á Jökulsárlóni um síðustu helgi og þar kemur fram að Jökulsárlón er 208 metra djúpt þar sem dýpst er fyrir framan jökulröndina við Breiðamerkurjökul. Árið 2001 þegar sambærilegar mælingar fóru fram á lóninu mældist dýpið 197 metrar fyrir framan jökulröndina þar sem hún var þá en síðan hefur jökullinn hopað um hundruði metra. Almennt þegar verið er að kynna Jökulsárlónið er talað um að það sé 200 metrar þar sem það er dýpst. Talið er að jökullinn sem er í lóninu sé um 1000-1500 ára gamall.
Þar sem bátarnir sigla á lóninu er um 100-120 metra djúpt en á miðju lóninu er dýpið 120 metra djúpt.




Skrifa athugasemd