Júlí
Pétur Haukur
Pétur Haukur
Pétur Haukur er enginn viðvaningur í skurðgreftri

02.07.2008 Júlí

Enginn barlómur í bændum hér í sveit

Miklar ræktunarframkvæmdir eru í Sveitarfélaginu Hornafirði og hugur í bændum að bæta við túnin og hreinsa uppúr skurðum á ræktunarlöndum, en það þarf að gera á nokkurra ára fresti. Þeir sem leið eiga á Hornafjarðarflugvöll sjá stóran og mikinn fráveituskurð sem Pétur Haukur Jónsson hefur verið að grafa fyrir túnrækt. Það er enginn barlómur í bændum hér þó móti blási í efnahagsmálum þjóðarinnar og miklar hækkanir á áburði og olíu segir Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambandsins, og menn eru ekkert á því að draga saman heldur hafa bú hér stækkað. Stærsta viðbótin í kúabúskapnum er nýja kúabúið í Flatey með á annað hundrað kýr og þar eru miklar ræktunarframkvæmdir í gangi.

Ræktunarframkvæmdir tilheyra ekki eingöngu bændum og á næstunni verður byrjað á að þurrka upp og endurbæta umhverfið við innkeyrsluna til Hafnar. Nýr skurður verður tekinn samhliða veginum frá pípuhliði að Brennuhól 25m. frá veginum og fyllt upp í skurðinn sem fyrir er. Skjólbelti kemur við skurðinn nær veginum ásamt göngu og hjólastíg og 20m. grænu svæði að veginum. Síðar verður farið í að þurrka upp svæðið innan við tjaldsvæðið og á fleiri stöðum í nágrenni bæjarins.
Heyskapur hefur gengið vel bæði hefur tíð verið hagstæð og grasspretta góð og sumir bændur eru að ljúka fyrri slætti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica