Júlí
Krafthópurinn
Krafthópurinn
Krafthópurinn kominn til Hafnar
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

02.07.2008 Júlí

Kraft-hópurinn kom til Hornafjarðar

Kraftur í kringum Ísland er framtak 9 manna hóps frá Vestmannaeyjum sem siglir í kringum Ísland á tveimur slöngubátum. Hópurinn kom til Hornafjarðar um miðjan dag á mánudag. Tilgangurinn með þessari ferð er að vekja athygli á og til að styrkja Kraft sem er stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þess. Lagt var af stað frá Vestmannaeyjum þann 14. júní og siglt til Reykjavíkur og svo haldið frá Reykjavík 17. júní og er ætlunin að enda ferðina í Vestmannaeyjum 4. júlí á goslokahátíðinni.

Fréttamaður vefsins hitti þessa eldhressu ferðalanga þegar þeir voru að ganga frá bátum sínum við bátabryggjuna og voru ekki sjáanleg þreytumerki á þeim bara útitekin og hraustleg eins og sjóarar eiga að vera. Þetta er búið að vera strembið ferðalag segir Bjartmar Sigurðsson, við höfum fengið leiðindaveður nánast allsstaðar, aðeins fengið tvo góða daga og það hefur verið barningur alla leiðina enda mannskapurinn orðinn þreyttur. Erfiðasti hluti leiðarinnar hingað var frá Reykjavík til Ólafsvíkur þar var mesti sjógangurinn en svo eigum við lengsta áfangann eftir þ.e. frá Höfn til Vestmannaeyja sem eru 170 sjómílur.

Bjartmar segir að undirbúningur fyrir ferðina hafi hafist í enduðum október sl. og þá hafi verið hafist handa af fullum krafti enda svakalega mikil vinna að koma svona ferð í framkvæmd. Bátarnir eru í eigu þátttakenda og allan viðlegubúnað eigum við sjálf. Flestir sem við leituðum til með aðstoð tóku okkur vel og sérstaklega tóku Vestmannaeyingar okkur vel, Hekla lánar okkur bílinn, Olís styrkir okkur með eldsneyti, sem komið er hátt í 200 þús. lítra og Sjóvá tryggir okkur en án þessara styrkja hefði þetta ekki tekist.

Stefnt verður að því að Kraft-hópurinn geti haldið áfram á morgun í lokaáfanga leiðarinnar.
Þeim sem vilja styrkja þetta góða málefni og fræðast meira um Kraft-hópinn er bent á heimasíðu þeirra sem er Kraftur í kringum Ísland.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica