Júlí
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

01.07.2008 Júlí

Drekinn kemur ferðafólki til hjálpar

Kolvitlaust veður er í Öræfasveit og hefur vindur farið í 50m þegar verst lét. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli var núna um kvöldmatarleitið að bjarga tveim ferðamönnum frá Slóveníu sem voru á mótorhjóli á leið í Hof en fuku útaf veginum. Sem oft áður kom drekinn að góðum notum þegar ekki er fært öðrum farartækjum og fór Ólafur á honum sótti fólkið og fór með það að Hofi þar sem það átti pantaða gistingu.Engin meiðsli urðu á fólkinu. Tjaldvagn er á hvolfi utan vegar skammt frá Hofi og sagði Ólafur að einhverjar skemmdir væru á vagninum.

Ólafur taldi að veður væri heldur að ganga niður en þó ekkert ferðaveður ennþá.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica