Júlí
Húsasmiðjan Höfn
Húsasmiðjan Höfn
Kristján "Venni" Björgvinsson (til vinstri) og Hajrudins Cardaclija í Húsasmiðjunni á Höfn

01.07.2008 Júlí

Nýr rekstrarstjóri tekinn við í Húsasmiðjunni á Höfn

Frá og með deginum í dag hefur Kristján V. Björgvinsson tekið við sem rekstrarstjóri í Húsasmiðjunni á Höfn. Hann tekur við starfinu af Gunnari Hermanssyni sem hefur gengt því frá því að Húsasmiðjan opnaði á Höfn, Gunnar heldur áfram sem starfsmaður Húsasmiðjunnar en hann segir að það sé kominn tími á að minnka vinnuna sökum aldurs og því geti hann gefið sér betri tíma til að sinn áhugamálum. Kristján V. Björgvinsson eða Venni eins og flestir þekkja hann er frá Grenivík/Seltjarnarnesi og hefur hann búið hér á Höfn síðustu 6 árin, sambýliskona Venna er Kristín Jónsdóttir starfsmaður hjá Sýslumanninum á Höfn. Venni segist hlakka til að takast á við þetta nýja og skemmtilega starf.

Venni er ekki bara liðtækur smiður og jarningarmaður en hann er mikill hestamaður og situr í stjórn Hestamannafélags Hornfirðings.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica