Peningalyktin verður ekki um helgina
Eins og allir hafa orðið varir við er bræðslan komin í gang, og loksins segja margir! En stundum vill fylgja starfseminni lykt sem mörgum finnst óþægileg en flestir þekkja sem peningalykt - og ekki að ósekju.
Vefurinn hafði samband við Ingva Sigurðsson framkvæmdastjóra fiskimjölsverksmiðjunnar og sagði hann að ekki yrði brætt neitt yfir helgina. Við ætlum ekki að angra nábúa okkar og aðra sem hér eru með peningalyktinni meðan humarhátíðin stendur yfir. Ingvi segir að Fiskimjölsverksmiðjan sé búin öllum þeim búnaði sem krafist er í svona verksmiðju en það sé bara ekki hægt að losna algjörlega við lyktina frá bræðslunni en við ætlum að gera enn betur og endurbæta þennan búnað og erum með mann í vinnu til að finna út hvað er árangursríkast og best.
Til gamans má geta þess að í dag fékk Ingvi græna bókhaldið sitt sem þýðir það að allt sem verið er að losa frá verksmiðjunni er í góðu lagi og þetta bókhald fer síðan til Umhverfisstofu. Um sólarhring tekur að bræða það hráefni sem bíður og sett verður aftur í gang á sunnudagskvöld og bræðsla hafin á ný. Síldarskipin eru farin til veiða á síldarmiðunum austur af landinu og gætu komið til löndunar á mánudag eða þriðjudag.





Skrifa athugasemd