Fjölbreytt og sérstakt, algjör ævintýraferð!
Fjöruferðir, fyrirtækið sem Haukur Sveinbjörns og Elvar Unnsteins stofnuðu á síðasta ári dafnar vel og fær góða umsögn. Haukur segir að núna sé allt að komast í fullan gang, maí hafi verið mjög góður þá hafi komið stórir hópar, ég hef verið með kynningar á ferðunum og m.a. fékk ég stóran söluaðila sem sagði að fjöruferðir væri það spútniskasta fyrirtæki sem fólk hefði upplifað og að fara þetta væri svo fjölbreytt og sérstakt, algjör ævintýraferð.
Eigandi búlgarskrar ferðaskrifstofu sem var á kynningu Fjöruferða ætlar að koma með hópa hingað en fram að þessu hafa Íslendingar verið fjölmennastir.
Fjöruferð er, að siglt er frá Óslandsbryggju yfir fjörðinn á Melatanga þar sem er kynning á svæðinu, komu Nelson þangað, flugvellinum sem áður var og minjar um veru Berta þar á stríðsárunum. Næst er stigið á fjórhjólin og haldið út að Hvanney og gengið frá litla vitanum á fjörunum út í Hvanney sem er um 20.mín.gangur. Þá er haldið vestur fjörur, komið á svæðið þar sem Breta-braggarnir voru og skoðuð vegsummerki um byggðina þar. Síðan ekið áfram vestur fjörur og í bakaleiðinni er ekið með firðinum að Melatangabryggju og siglt í land. Ferðin tekur um 70 mínútur.
Fjöruferðir starfa allt árið og ferðirnar eru ekki bara eftirsóknarlegar í góðu veðri, það er ekki minna að sjá þar þegar veður eru "ekki góð" og náttúruöflin við Hvanney og ströndina eru í ham, þá er bara að fara í góðan kuldagalla og njóta stórfenglegs útsýnis.
Elvar hætti í fyrirtækinu í vor og hefur Haukur fengið Guðbrand Jóhannsson til liðs við sig og auk þeirra eru tveir starfsmenn.





Skrifa athugasemd