Júní
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

23.06.2008 Júní

Bæjarráð mótmælir harðlega auglýsingu Vatnajökulsþjóðgarðs

Á fundi Bæjarráðs í dag lagði Bæjarráð fram eftirfarandi bókun vegna staðsetningar höfuðstöðva Vatnajökulsþjóðgarðs: Bæjarráð Hornafjarðar mótmælir harðlega að skrifstofustarf við Vatnajökulsþjóðgarð hafi verið auglýst með aðsetur í miðborg Reykjavíkur og hvetur yfirstjórn þjóðgarðsins til þess að endurskoða ákvörðunina. Einnig áréttar bæjarráð fyrri yfirlýsingar sínar og bæjarstjórnar þess efnis að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs skuli staðsettar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillaga þess efnis var lögð fram á stjórnarfundi Vatnajökulsþjóðgarðs þann 7. desember 2007 en niðurstaðan varð önnur. Mikilvægt er að þau störf sem skapast í tengslum við uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs verði staðsett á áhrifasvæði þjóðgarðsins eins og lagt var upp með við allan undirbúning að stofnun hans.

Eigi náttúruvernd að verða trúverðugur valkostur sem hluti af atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni er nauðsynlegt að stíga markviss skref í þá átt að fjölbreytt störf verði til á áhrifasvæði þjóðgarðsins. Bæjarráð hvetur umhverfisráðherra til þess að beita sér fyrir því að svo megi verða og vísar í samþykkt stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs frá 7. desember 2007 um að endurskoða eigi staðsetningu framkvæmdastjóra um leið og stjórnfyrirkomulag garðsins og krefst þess að það verði gert hið fyrsta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica