Júní
17. júní 2008 Á hóteltúninu
17. júní 2008 Á hóteltúninu
17. júní 2008 Á hóteltúninu
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

19.06.2008 Júní

Hátíðarhöldin á 17. júní

Hátíðahöldin á 17. júní á Hornafirði hófust með skrúðgöngu frá Vesturbrautarplaninu þar sem Lúðrasveit Hornafjarðar spilaði fyrir göngunni sem leið lá á Hóteltúnið. Þegar þangað var komið lék Lúðrasveitin nokkur létt lög. Kynnir dagsins Sævar Þór Gylfason, tók svo við og bauð fólk velkomið, en ágætis mæting var þrátt fyrir töluverðan vind og kulda. Árni Rúnar Þorvaldsson formaður bæjarráðs flutti hátíðarávarp því næst var ávarp Fjallkonunnar, en það var Stefanía Anna Sigurjónsdóttir sem var fjallkonan að þessu sinni og ávarp nýstúdents flutti Hrafn Eiríksson. Því næst var komið að því að veita íþróttafólki viðurkenningar og velja íþróttamann USÚ 2007 og voru það stjórnarkonur úr USÚ Ragnhildur Einarsdóttir og Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir sem sáu um afhendinguna.

Eftirtaldir voru útnefndir;
Knattspyrnukona ársins 2007 Hulda Björg Sigurðardóttir
Knattspyrnumaður ársins 2007 Björn Pálsson,
Sundmaður ársins 2007 Sandra B. Gunnarsdóttir
Golfmaður ársins 2007 Bragi Fannar Þorsteinsson
Fimleikamaður ársins 2007 Þóra Ingvadóttir
Frjálsíþróttamaður ársins 2007 Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Körfuboltamaður ársins 2007 Skúli I. Þórarinsson
Hestamaður ársins 2007 Guðmundur Davíð Sigurðsson
Íþróttamaður USÚ var svo valinn úr þessum hópi Guðmundur Davíð Sigurðsson.
Að þessu loknu var fimleikasýning þar sem elstu iðkendur fimleikadeildar sýndu listir sínar undir öruggri stjórn Kristinns Þórs þjálfara. Það var lokaatriðið í hefðbundinni dagskrá á hátíðarsviði, en við tók pylsugrill, andlitsmálun og leiktæki jafnframt því sem 3. flokkar Sindra héldu úti sjoppu til styrktar Noregsferð sinni.
Um kvöldið var svo dansleikur í íþróttahúsinu þar sem Hljómsveitinn Undur skemmti ungum sem öldnum. Það var UMF.Sindri sem hélt utan um hátíðarhöldin að þessu sinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica