Júní
Olgeir og Gunnar Örn
Olgeir og Gunnar Örn
Olgeir og Gunnar Örn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

12.06.2008 Júní

Stækkun Álaugareyjarbryggju gengur vel

Stutt er í að lokið verði við endurbætur á austurkanti Álaugareyjarbryggju og búið að reka niður stálþil fyrir enda bryggjunnar Því næst verður rekið niður 150m. langt stálþil frá vesturenda bryggjunnar vestur fyrir gömlu trébryggjuna og breikkar þetta nýja bryggjusvæðið um 6 m. breiðast vestast. Nýja bryggjan mun ná vestur fyrir gömlu trébryggjuna og sjá má á myndinni spýtu sem sýnir hvað langt verður í stálþilið frá trébryggjunni þ.e 6 m.

Verktakinn og bryggjusmiðurinn Guðlaugur Einarsson frá Fáskrúðsfirði átti lægsta tilboðið í bryggjuna kr. 53.374.931 en kostnaðaráætlun Siglingastofnunar var kr. 70.402.240.
Vegna alvarlegra veikinda hefur Guðlaugur ekki getað séð um verkið sjálfur og fékk því Olgeir Jóhannesson á Höfn til að annast verkið. Í tilboðinu felst að reka niður stálþil , steypa bryggjukanta og bryggjupolla og gróffylla að þilinu.
Olgeir segist kunna vel við þetta verkefni, þetta er skemmtileg tilbreyting frá fyrri störfum en hann vill þó ekki segja neitt um hvort hann muni leggja bryggjusmíði fyrir sig í framtíðinni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica