Skortur á leiguhúsnæði á Höfn
Sala fasteigna hér á Hornafirði gengur alveg þokkalega og það er alltaf hreyfing á markaðinum segir Sigríður Kristinsdóttir hdl. og löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni INNI. Auðvitað höfum við fundið fyrir þessu lánastoppi bankanna og hvað það dregur mikið úr viðskiptum með fasteignir. Hér eru fáar eignir á söluskrá færri en undanfarin ár og lítið um húsnæði á leigumarkaði. Sigríður á von á að farið verði í byggingu á leiguhúsnæði í sumar og er í athugun hvernig húsnæði kæmi helst til greina. Bæjarfélagið á um 60 leiguíbúðir sem allar eru í leigu og um 10 umsækjendur eru á biðlista eftir íbúðum.
Sigríður stofnaði Fasteignasöluna Hraun sf. 1989 og rak hana þar til 1.maí í fyrra en þá
tók gildi samkomulag eigenda Fasteigna- og skipasölu Austurlands ehf á Egilsstöðum Hrauns sf. á Hornafirði og Eignaþings ehf. á Húsavík um sameiningu á starfsemi þessara félaga og ber heitið Fasteignasalan INNI





Skrifa athugasemd