Félagsmót Hornfirðings næstu helgi
Félagsmót Hornfirðings verður haldið helgina 14. og 15. júní að Stekkhól í Nesjum Hornafirði. Mótið byrjar kl. 13:00 á laugardag. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, a og b flokki , tölti, skeiði og stökki. Einnig verða sýnd unghross í tamningu. Mótið er einnig úrtaka fyrir landsmót sem haldið verður í byrjun júlí á Gaddastaðaflötum við Hellu. Eftir keppni á laugardag verður grillað og svo haldið í útreiðartúr útí Skógey sem er mjög gott útreiðaland og útsýnið óviðjafnanlegt.
Á sunnudag kl. 13:00 verða svo riðin úrslit í öllum flokkum. Tekið er við skráningum í netfangið artun@centurm.is . Skráningum líkur kl 19:00 á fimmtudag.





Skrifa athugasemd