Júní
Rarik_Gulli-Rammi
Rarik_Gulli-Rammi
Gulli á leið niður í undirheima götunnar
Mynd 1 af 2
1 2

10.06.2008 Júní

Að vísu pínulítið grennri þá

Fréttamaður vefsins hitti þá félaga Sigurjón Gunnarsson og Guðlaug Vilhjálmsson (Gulli rammi), starfsmenn Rarik á Höfn, er þeir voru að huga að bilun í heitavatnskerfinu neðanjarðar í Miðtúninu og voru ekkert að tvínóna við að renna sér niður um örmjótt op. Aðspurður sagði Sigurjón að þetta væri ekkert mál og því til sönnunar sagði hann að einu sinni hefðu þeir lent í því að gat kom á leiðslu þarna niðri og sjóðheitt vatnið spýttist út, þá áttu þeir fótum fjör að launa og það hefði fyrst verið þegar þeir voru komnir upp á götu að þeir áttuðu sig á því að þeir höfðu farið báðir í einu upp um gatið. Sigurjón bætti svo við að þeir hefðu að vísu verið pínulítið grennri þá.

Starfsmenn Rarik á Höfn munu á næstu dögum fara í lagningu heimtaugar að sundlaugarbyggingunni og er efni tilheyrandi henni væntanlegt í byrjun þessarar viku. Sigurjón sagði að sú vinna mundi taka um tvær vikur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica