Golfvertíðin er að hefjast
Golfbúðin í Hafnarfirði var styrktaraðili golfmótsins sem haldið var laugardaginn 7. Júní á Silfurnesvelli. Mótið fór fram í þokkalegasta veðri og voru þátttakendur ánægðir með daginn.
Magnús Jónason fór með sigur af hólmi í karlaflokki og Anna Halldórsdóttir í kvennaflokki. Þetta var punktamót. Nánari úrslit eru á www.golf.is
Um leið og Golfbúðinni eru færðar þakkir fyrir stuðninginn er golfáhugafólki bent á að fylgjast með auglýsingum varðandi golfkennslu en Sturla golfkennari er væntalegur aftur til okkar í sumar.
Einnig eru að hefjast golfæfingar fyrir börn og unglinga og eru þær þátttakendum að kostnaðarlausu.
Mætum vel á völlinn í sumar og nýir félagar eru alltaf velkomnir.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Á myndinni eru allir þeir sem hlutu verðlaun í mótinu.





Skrifa athugasemd