Sjómannadagshelgin fór vel fram
Að vanda byrjaði formleg sjómannadagshelgi með kappróðri á laugardeginum 31.maí þar sem fimm kallalið og þrjú kvennalið öttu kappi. Urðu úrslitin þannig að lið Sigurðar Ólafssonar sigraði kallaliðið með tímann 1:12 og hlutskarpastar í kvennaróðrinum voru sjómannskonur með tímann 1:09, en þess má einnig geta að þetta var þriðja árið í röð sem þær unnu og einnig í fyrsta skinn þar sem kvennalið er með betri tíma en kallalið og unnu þær bikarinn eftirsótta til eignar. Á eftir voru svo bryggjuleikir, en frekar dræm þátttaka var í þeim. Þyrla landhelgisgæslunnar kom og sýndi listir sýnar ásamt Björgunarsveit Hornafjarðar og æfðu þeir björgun manna úr sjó og skipi.
Fiskasýning var á bryggjunni þar sem flóran af fiskum hafsins var til sýnis. Svo var farin sigling báta en vegna þoku var aldrei farið lengra en út undir hafnarminni og var siglingunni frestað þangað til daginn eftir.
Um kvöldið var svo sjómannadansleikur í íþróttahúsinu þar sem Veitingastaðurinn Víkin sá um matinn ásamt kokkinum Jóni Sölva og var almennt látið vel af. Veislustjórn var í höndum Einars Stefáns og fólst honum stjórnunni vel þar sem hann gerði góðlátlegt grín af heimamönnum. Hljómsveitin Kusk lék svo fyrir dansi fram eftir nóttu. Sjómannadagurinn var með hefðbundnu sniði á sunnudeginum þar sem haldin var sjómannamessa og lagður var krans á minningarreit látinna sjómanna. Á eftir var skemmtun á hóteltúninu með hefðbundnu sniði. Veitt voru verðlaun fyrir kappróður kvenna og kalla, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flutti sjómannadagsræðuna. Að venju var sjómaður heiðraður fyrir störf sín á sjónum og hlaut vélstjórinn Guðmundur Sigurðsson þann heiður. En hann hefur verið hátt í 50 ár á sjó á hinum ýmsum bátum. Spilað var humarbingó, hoppkastalar voru á staðnum og karmellukast fyrir börnin. Að dagskránni lokinni var farin sigling báta en henni hefði verið frestað deginum áður vegna þoku.
- Sjómannadagsráð 2008





Skrifa athugasemd